Fimmtudagur, 06. maí 2004
Þetta var nú ljóti dagurinn framanaf. Eyddi morgninum í að redda vegabréfaumsóknunum fyrir mig og krakkana. Var búin að taka myndir af krökkunum og mér.. nema ég þurfti að prenta þetta út hjá mömmu og pappírinn kláraðist áður en ég var búin að prenta mig út.
Það var ekkert annað að gera en að fara í Kringluna og taka mynd af mér í kassanum. Gerði það og fékk mynd dauðans, sem verður í vegabréfinu mínu. Sé fram á að vera sett í full body search á öllum viðkomustöðum hér eftir sem líklegur dóp/byssu/kjarnorku smyglari.
Vissi ekki að ég liti svona krimmalega út.
By-gons. Afneitun rúlar.
Martröð dagsins var samt óneitanlega ferð mín í Bónus. Ég þoli ekki að versla í matinn. Sérstaklega ekki þegar ég hef ekki gert það lengi og ekkert er til. Kláraði í morgun síðasta klósettpappírinn, síðustu slummuna úr handsápupumpudraslinu, síðustu farðadropana yfir bólurnar sem eru á undanhaldi síðan síðast, síðustu brauðskorpuna í morgunmat, síðustu löggina af mjólk út á corn flakes-ið hans Dodda o.s.frv. Ef ég væri hagsýn húsmóðir myndi ég nota tækifærið og þrífa skápana því þeir eru allir tómir.
Já.. nei ég tæmdi þá alla þegar ég var að leita um daginn..
Ég hef verið allt of upptekin við að læra og rusla til í íbúðinni til að kaupa mat. Má ekki vera að þessu. Ég er samt ekki frá því að börnin manns læri að meta lífið betur þegar þau eru svelt svona í nokkra daga. Þegar ég setti lýsi í körfuna heyrðist í Dodda: "Vá... lýsi.. gaman".
Æi ég er andlaus og lömuð og slyttisleg og þreytt. Og þegar ég lít í kringum mig verð ég ennþá þreyttari.
Mig langar í bíó.
Getur ekki einhver góðhjartaður einstaklingur boðið mér í bíó? Ég er ekki að meika að vera heima hjá mér í þessu rusli öllu saman. Mig vantar húsjálp, kokk, einkaþjálfara, næringarsérfræðing, nuddkonu, stílista, stærðfræðikennara, sálfræðing, bílstjóra og garðyrkjumann. Það má alveg fylgja herragarður með.
Best að kíkja á smáauglýsingarnar undir "gefins"...