www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Drög að áætlun
Þriðjudagur, 04. maí 2004

Akkúrat núna, þegar ég ætti að vera að farast úr stressi, líður mér eins og blómstrinu eina. Mig langar óneitanlega að fara út á vídeó leigu og ná mér í mynd, fullt af nammi og planta mér í sófann.. en ég er svo ábyrg að ég geri það ekki. Ætla í vinnuna að prenta út verkefnið mitt í fjórum eintökum. Ég er búin.

Eða búin? Ég þarf að setja allt verkefnið smekklega upp í StarOffice þegar ég kem í vinnuna og prenta það út. Það mun taka mig ca klukkutíma. Þegar ég er búin að því ætla ég að fara á Nings og ná mér í mat.. og þegar ég er búin að borða.. ætla ég að klára hitt þarna sem ég þarf að gera fyrir morgundaginn.

Það tekur mig ca klukkutíma. Þegar ég er búin að því... verður klukkan orðin 10, ef ég reikna með eðlilegum töfum.. svo þá ætla ég í bað. Þegar ég er búin í baði, klukkan hálf þrjú í nótt, ætla ég að æfa það sem ég ætla að segja í þessu munnlega prófi og fá mér bjór á meðan. Þegar ég er búin að því er líklega komin tími til að mæta í vinnuna. Þegar ég kem í vinnuna ætla ég aðeins að halla mér fram að hádegi.

Segið svo ekki að ég kunni ekki að gera áætlanir!

In the meantime.. Muppet show theme + bonus


| anna | 18:27 |
comments

Mér dettur í hug auglýsingin fyrir The Office sem er búin að vera að hljóma alloft á RÚV undanfarið, þar sem aðalkallinn kemur inn í "alrými" skrifstofunnar og tekur þátt í manamana-Muppetsöngnum. Sem sagt, ég er að pæla... segir hann ekki "ahh Muphets" (:möffetssmile í lokin? Eða jafnvel möffins? Hann er eitthvað svo umkomulaus og hallærislegur greyið, þetta væri lína sem passaði honum vel.

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 4.05.2004 | 21:58:10 | [+] |

hva.. þekkirðu ekki hann Kermit? tíhíhí happy

Nr. 2 | posted by: anna | 4.05.2004 | 22:05:24 | [+] |

Þetta er nú með því betra sem ég hef lesið. Nei það verður ekki sprengfimt andrúmsloft. Not by the least. Stundum, þegar ég er í símanum í vinnunni, er ég að dytta að nöglunum á mér, plokka mig eða gera eitthvað annað skemmtilegt. Stundum ligg ég slyttislega í stólnum með fæturna uppá borði á meðan ég er að tala við viðskiptavinina.

Ég kemst upp með þetta því ég þekki síðuna okkar eins og handabakið á mér og þarf ekki að fylgja þeim í praxís. Ég veit líka svörin við flest öllum spurningum sem ég fæ, nema þegar fólk hringir í mig til að kvarta yfir þjónustunni hjá Ikea.

Á morgun ætla ég að prufa að vera sofandi á meðan ég tala við fólk í símann. Ég er ekki frá því að það gæti virkað og þá myndi ég nýta næturna svo miklu, miklu betur.

Svo á ég til að segja svo skemmtilega frá uppúr svefni skilst mér. clown

Nr. 3 | posted by: anna | 4.05.2004 | 22:47:20 | [+] |

Þú ert snillingur í tímastjórnun thumb up

Nr. 4 | posted by: edda | 5.05.2004 | 11:10:14 | [+] |

I KNOW! (Monica style) clown

Nr. 5 | posted by: anna | 5.05.2004 | 11:12:01 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web