www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dallas
Fimmtudagur, 06. maí 2004

Annars er S.O.A.P. ekki það eina sem ég sakna úr íslensku sjónvarpi..

J.R.: "He bit me!"
Sue Ellen: "Who?"
J.R.: "Cliff Barnes, that rodent!"
Sue Ellen: "How did he bite you?"
J.R.: "With his teeth Sue Ellen, how do you think he's gonna bite me?"

Ég verð að láta Dallas theme lagið fylgja með fyrir aðra nostalgíuhunda. Þetta lag er snilld.

Fyndið. Ég kenndi börnunum mínum að fíla þetta lag fyrir löngu síðan og alltaf þegar ég spila það dansa þau um íbúðina. Enda spila ég það í botni ef ég spila það á annað borð. -Og ég er að fatta.. að þau vita ekki hvað Dallas er!

Synd og skömm á öld endursýninga.

Ein smá getraun. Man einhver eftir þessum þáttum?

Snilld.

Ennþá að bæta við. Ég bjó þetta til fyrir nokkru síðan. Þetta er stórt, 8 mín syrpa úr þáttum síðan ég var krakki. Það fer um mig sæluhrollur... úff.. Hill street blues.. það er megaflott theme.

allen.gifSvo er þetta auðvitað algjör demantur! Dave Allen At Large.

Annars er ég ekki að djóka með Muppet show theme lagið. Það kemur mér í stuð. hahahahaha


| anna | 0:12 |
comments

Ég var aldrei að fíla Dallas. En horfði samt alltaf á þættina, það var ekkert annað að gera. Það sem maður lét yfir sig ganga!

En sem alvöru nostalgíari - má ég þá biðja um frí á fimmtudögum aftur. Plís! OG ÚTVARPSLEIKRIT!! (ok, ég veit þau eru annað slagið, en ég vil skylduhlustun...)

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 6.05.2004 | 0:24:59 | [+] |

Djöfull. Nú get ég ekki sofnað. Veit hvað þetta er en samt ekki. Ekki er þetta Onedin skipafélagið?

Nr. 2 | posted by: igor | 6.05.2004 | 0:39:40 | [+] |

Með konunni sem dansaði í eldinum. Ég á það nú einhverstaðar á gif formi...

Nr. 3 | posted by: anna | 6.05.2004 | 0:42:44 | [+] |

Auðvitað. Frábærir þættir. Rámar alltaf í einn þátt sem fjallaði um mann sem átti að geta sagt til um rauðvín blindandi frá A-Ö og var að því kominn að eignast dóttur húsráðanda ef hann gæti sagt til um 3 gerðir rauðvína.

Áttu nokkuð Onedin skipafélagið annars?

Nr. 4 | posted by: igor | 6.05.2004 | 0:47:44 | [+] |

Nei.. en ég veit hvar ég get fundið það..

Nr. 5 | posted by: anna | 6.05.2004 | 0:58:44 | [+] |

ég man óskaplega óljóst eftir löðri. horfði alltaf á það með mömmu og pabba en var sennilega of ung til þess að geta munað það svona skýrt eins og þið virðist gera. ég man samt eftir fimmtudagsfríunum, sumarfríum sjónvarpsins og einstaka útvarpsleikriti.
ég væri alveg til í að búa í landi þar sem sjónvarpsdagskrá væri af skornum skammti eins og þá og maður ætti bara svona hálftíma þátt á laugardögum og klukkutíma af barnatíma á sunnudögum sem væri horft á af hátíðlegri ánægju.
þá myndi mér kannski verða meira úr verki... gnasher

Nr. 6 | posted by: maja | 6.05.2004 | 10:06:41 | [+] |

Ég horfi ekkert á sjónvarp þessa dagana. Er þó með allar mögulegar og ómögulegar stöðvar. Slökktu bara á græjunni! Þá verður manni svakalega mikið úr verki wink

Nr. 7 | posted by: anna | 6.05.2004 | 13:02:49 | [+] |

Onedin, settu það inn líka. Þú ert meira en kennslugagn Anna, þú ert gullnáma!

Nr. 8 | posted by: ingo | 6.05.2004 | 16:05:46 | [+] |

Mikið skil ég þig vel. Sakna einmitt einnig SOAP. Keypti nýlega Rætur á DVD. Það var frábær upprifjun. Þættir sem höfðu mikil áhrif á mig. Annars fílaði ég syrpuna þína. Dásamlegt!!! smile

Nr. 9 | posted by: Þorkell | 6.05.2004 | 17:07:07 | [+] |

Já það verður vonandi búið að gefa þetta allt út á DVD svo maður þurfi ekki að flétta körfur eða fara í göngutúra þegar maður er orðin gamall wink

Annars bjó ég þessa syrpu til sem getraun einu sinni. Og hingað til hefur engin geta nefnt alla þættina. colgate

Nr. 10 | posted by: anna | 6.05.2004 | 18:42:03 | [+] |

Uppáhaldssetningin mín úr Dallas var þessi (sögð svona hundrað sinnum af Sue Ellen): I don't know, I'm so confused.

Þá ákvað ég að skera herör gegn þáttum þar sem karlarnir voru ákveðnir og konurnar ringlaðar. Samt elskaði ég Dallas.

Annars hélt ég mest upp á ljóshærðu konuna með teipið. Man einhver eftir henni?

Nr. 11 | posted by: Pulla | 7.05.2004 | 10:54:20 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web