www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Blame it on the boogie
Þriðjudagur, 04. maí 2004

Ég er að fara út að dansa á laugardaginn og það bókstaflega ískrar í mér af kátínu.

Við erum fjögur, gamlir skólafélagar, sem höfum reynt að hittast ca ársfjórðungslega og skemmta okkur saman. Við sitjum yfirleitt og kjöftum allt of lengi og förum allt of seint niður í bæ. Ég er sú eina sem hef ekki verið single og oftast farið miklu fyrr heim en mig langaði. Nú vill til að ein af okkur er að flytja af landi brott og það er ekki nokkur spurning.. það verður að kveðja hana Siggu með virktum.

Nú sé ég eftir því að hafa tekið gervileðurkjólinn minn niður í frumeindir.. en hugga mig við að ég á pilsið ennþá..

Hvert fer maður út að dansa í dag? Veit einhver?


| anna | 14:25 |
comments

doubt Ég fór mikið í Hollywood á sínum tíma (15). Er það komið aftur???

Og þetta verður að vera niðrí bæ. Ég þarf að vera innan my comfort zone.. hehehe colgate

Nr. 1 | posted by: anna | 4.05.2004 | 15:00:22 | [+] |

Úff ég sé að það er svipað langt frá því atviksorða-anna fór út að skemmta sér eins og meinvill-anna og virðist sem líka hafi liðið langur tími frá því anna.is- anna hafi farið nokkuð.....

Nr. 2 | posted by: Anna - Meinvill | 4.05.2004 | 15:04:42 | [+] |

Jebb. Ljóta ruglið. Ég ætlaði á Skuggabar þegar hann var búinn að vera lokaður í tvö ár. Er maður glataður eða glataður? laughing laughing

Nr. 3 | posted by: anna | 4.05.2004 | 15:10:16 | [+] |

ég fer yfirleitt inn á hvaða staði sem er í þau fáu skipti sem ég fer út, bara svona að skanna í hvernig hópa þjóðin skiptist og hef komist að eftirfarandi niðurstöðum: kaffi thomsen og nasa, þangað fara æskuvinkonur mínar sem eru viðskiptafræðimenntaðar í dag og eru ungar á uppleið. kaffibarinn og sirkus, þangað fara vinir systur minnar sem eru úr listaháskólanum. dubliners og kaffi victor, þar byrja alltaf drukknir eldri karlmenn að angra okkur beggu vinkonu, glaumbar ef ykkur langar að horfa á fótbolta, gaukurinn ef ykkur langar í live tónlist með allskonar fólki (oft í leðurjökkum), vegamót fyrir fólk sem talar um háskóla og nellýs fyrir þá sem er skítsama (eða eiga lítinn pening). ég veit að þetta hljómar eins og voða mikil alhæfing, en ég á bara við svona general tendensa. það væri td. hægt að rekast á mig á öllum þessum stöðum uþb. einu sinni á ári, en ég er svolítið þessi kameljón-týpa. fer bara eftir skapinu hvaða týpa ég er colgate

Nr. 4 | posted by: maja | 4.05.2004 | 15:18:11 | [+] |

Guð minn góður Edda. You just killed it. Mig langar ekki út ef ég þarf að líta út eins og fáviti.

80's.. been there, done that.

Auk þess.. Ég ekki að fara á veiðar svo ég fer kannski bara í lopapeysunni sem ég fann þegar ég var að leita að markaðsdótinu mínu á sunnudaginn. toungue

Nr. 5 | posted by: anna | 4.05.2004 | 15:18:34 | [+] |

Hei takk fyrir þessa greiningu Maja. Ég held ég stefni þá á Nasa.. eða eh.. tíhíhí Gaukinn. Ég hef gaman af allskonar fólki. Vá! Kannski ég fari í gamla leðurjakkanum! Nii... cool

Nr. 6 | posted by: anna | 4.05.2004 | 15:21:12 | [+] |

mundu bara að flestir eru farnir að rukka inn.
pakk hmmm

Nr. 7 | posted by: maja | 4.05.2004 | 15:25:38 | [+] |

Og hvað erum við að tala um hérna? Einhverjar upphæðir? clown

Nr. 8 | posted by: anna | 4.05.2004 | 15:31:37 | [+] |

á milli 500 og 1500 held ég. annars bakka ég yfirleitt út med det samme þegar maður á að fara að borga fyrir að heiðra staðinn með nærveru sinni. (hef heyrt að þeir sleppi sem eru komnir út fyrir miðnætti eða eitthvað svoleiðis) annars er ég alls enginn skemmtanalífsgúrú. heyri aðallega í liðinu þegar það er á leiðinni heim eftir djammið (inn um gluggana sko)

Nr. 9 | posted by: maja | 4.05.2004 | 15:44:39 | [+] |

ekki út af staðnum heldur út á lífið...inn á staðinn nerd

Nr. 10 | posted by: maja | 4.05.2004 | 15:45:19 | [+] |

FIMMTÁNHUNDRUÐ? drunk

Kannski í lagi hjá fólki eins og mér. Sem fer út á þriggja ára fresti...

Nr. 11 | posted by: anna | 4.05.2004 | 15:47:09 | [+] |

fyrir utan það sem drykkir kosta. sem betur fer hef ég ekki lengur úthald í mikla drykkju og er of nísk að eðlisfari til að ganga af göflunum á barnum. er meira svona súpa bjór með makanum yfir góðri mynd - kind of girl. angel

Nr. 12 | posted by: maja | 4.05.2004 | 15:56:18 | [+] |

Flott greining hjá Maju wink held að meira segja ég gaflarinn geti farið eftir þessu og fundið minn stað angel ..

Nr. 13 | posted by: meinvill | 4.05.2004 | 16:07:56 | [+] |

Er þetta ekki bara spurning um þægileg föt sem hægt er að tjútta í. Svo á ég æðislegan bleikan magadansbúning ef þú vilt sýna það sem þú ert búin að læra

toungue Þú áttir svo askoti fínt safn af grifflum.... toungue

Nr. 14 | posted by: edda | 4.05.2004 | 16:13:12 | [+] |

Edda.. segðu mér eitt. Áttu alvöru 80's dót síðan þá? Kúkabuxur, boli með vængjaermum? Krumputækið þitt... virkar það?

Þetta með grifflurnar átti sínar eðlilegu skýringar. Ég bjó í nýbyggingu í Kópavogi. Þarf ég að útskýra það nánar? smile

Nr. 15 | posted by: anna | 4.05.2004 | 16:20:53 | [+] |

Nei þú þarft ekkert að útskýra. Ekki langt síðan í var í sömu sporum - þe. í nýbyggingu smile

Ekkert eftir af flotta fataskápnum. Jú! Krumputækið er ennþá til og virkar. En ég á annað tæki sem ég nota mun oftar - sléttujárn! Ég á reyndar ennþá nokkra af hlýralausu kjólunum mínum. En í eihverjum flutningunum hurfu 10 pör af pinnahælum. Hann fékk ekki mitt leyfi til þess að henda neinu sem minnti á sokkabands/grifflu árin okkar... laughing

Nr. 16 | posted by: edda | 4.05.2004 | 18:18:27 | [+] |

Christ.. sokkabands/grifflu árin.

Það var nú oft helv gaman. Það er eins og mig rámi í flösku af Icy vodka.. hjólbörur, lögreglu..

Þetta voru góðir tímar. Góðir tímar. Hei! Ættum við ekki að hóa í Agnesi og halda smá kjaftaklúbb og rifja upp gamla tíma?

Nr. 17 | posted by: anna | 4.05.2004 | 18:22:35 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web