www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
..and now I feel..
Laugardagur, 15. maí 2004

Ég fékk ég símtal í dag sem gæti flækt málin örlítið. Er búin að vera í símanum í fokking sex tíma eða síðan klukkan tvö í dag. Gamall vinur minn frá því fyrir mörgum, mörgum, mörgum árum. Kynntist honum þegar ég var skiptinemi í US. Hann var nokkrum árum eldri og vann við að ræsta á McDonalds, þar sem ég hélt mest megnis til í frístundum. Ágætlega sætur strákur þá en með allt of stóra drauma. Ég ætlaði nú ekki að pleisa hann eða ekki fyrr en hann rakti söguna sem ég sagði honum um það þegar afi dansaði break dance í fermingunni hennar Gullu þarna um árið og rófubeinsbraut sig svo illa að hann stóð aldrei upp eftir það.

Bygons.

Neil sagði mér frá því að stuttu eftir að ég fór heim til Íslands fékk hann sig fluttan á McDonalds staðinn í down town Hollywood og lenti víst stuttu síðar í bílslysi. Það var reglulegt lán í óláni að sá sem keyrði, yfir hann, var ríkur pródúsent í Hollywood því Neil þurfti að gangast undir lýtarlækningaraðgerðir í einhvern tíma, sem hann hefði augljóslega ekki haft efni á ef eitthvað gimp með enga peninga hefði keyrt á hann og það hjálpaði að pródúsentinn var í kókaínvímu og vildi allt fyrir hann gera til að sleppa við lögreglu og vesen.

Nema hvað... hann lét laga nokkra hnökra hér og þar, enda þurfti að lappa uppá hann nánast allan og fjarlægja dekkjaför af lærum, höndum og enni. Hann þjáist ennþá af bakverkjum og er með ónýta hálsliði. Augljóslega hafði hann gott hreðjatak á umræddum pródúsent og mætti segja að það hafi opnað nokkrar dyr fyrir kauða sem annars hefðu verið harðlæstar. Neil tók upp nafnið George til heiðurs George Michael sem hann dýrkaði á þessum árum. Það var nú eiginlega mér að þakka, hann var Andrew fan þangað til hann kynntist mér og ég útlistaði fyrir honum hvað Andrew væri mikill hálfviti. Sást á honum langar leiðir. Samt.. hvað hann Neil var glataður með þessar legghlífar sínar alltaf og þvílíkt mullet hef ég bara aldrei séð hvorki fyrr né síðar. Með hormottu dauðans. Æ hann var nú ekkert rosalega sætur.. ekki þegar maður setur útlitið í orð allavega...

Nú.. hann er búin að vera að leita að mér víst í nokkur ár núna. Þótti svo vænt um tímann þegar ég sat hjá honum inná klósetti þegar hann var að þrífa dollurnar og skylmast við mig þess á milli með klósettburstunum af lagernum. Það sem við rændum af sápum og rusli á þessum lager, það var ekki fyndið. Hann sagði mér að þetta væri besta tímabil í lífi sínu. Frægðin er ekki "all that it's made up to be". Duh! Sagði ég nú bara. Ég var alltaf að segja honum að það væri ekkert gaman að vera frægur. Miklu heilbrigðara að kaupa sér bara lítið hús með hvítri girðingu og walk in closet, hrúga niður börnum og bíða ellinnar. Hann er loksins búin að átta sig á því að ég hef, eins og alltaf, rétt fyrir mér.

Little did I know.. því þegar hann byrjaði að tala við mig.. þá sagðist hann vera í Boston. Sem var alveg satt. Nema þegar símtalinu lauk.. þá var hann lentur í Keflavík.

Hvernig á ég að útskýra það fyrir Jude, þegar hann kemur á eftir, að George er í heimsókn hjá mér?

Andrew Clooney. Það hefði aldrei virkað.


| anna | 20:27 |
comments

Ég á eitthvað af myndum sem þú sendir mér meðan þú varst þarna úti. Þetta var náttúrulega fyrir tíma tölvupóstsins þannig að þú handskrifaðir öll bréfin (vorum alltaf í keppni um það hvor skrifaði lengri bréf) og ég geymi þau enn!! evil
Ekki ófáar myndirnar teknar af ykkur Julie á McDonalds!!! Spurning um að birta eitthvað af þessum myndum?

Nr. 1 | posted by: edda | 15.05.2004 | 20:56:07 | [+] |

Ó mæ god! Ég sendi þér mynd af Neil! Mannstu, hann var með moppuna á hausnum og Julie sat á skúringavagninum!! Ég verð að fá þessa mynd hjá þér!!!

Nr. 2 | posted by: anna | 15.05.2004 | 20:59:27 | [+] |

OMG, þú ert í vanda cool oh no!

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 16.05.2004 | 3:19:21 | [+] |

Það er nú alger óþarfi að lækka ránna niður í Special Olympics hæð.

Nr. 4 | posted by: Organistinn | 16.05.2004 | 4:44:13 | [+] |

Organisti: Það er ekki nokkur leið að gera þér til hæfis.

Nr. 5 | posted by: anna | 16.05.2004 | 11:51:31 | [+] |

Það kom hvergi fram að ég hefði neitt sérstaklega notið þess að horfa á hann drekka kaffi eða að reyna að spjalla við hann í látunum frá playstation.

Maður er bara ekkert að útlista það sem skemmir fyrir heildarmyndinni...

Nr. 6 | posted by: anna | 16.05.2004 | 23:13:03 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web