www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Why so melancholy?
Miðvikudagur, 07. apríl 2004

128_2855.jpgEftir skólann í dag fór ég með Dodda og Jóhönnu á sundsýninguna hjá hópnum hans Dodda í sundi. Hvað strákurinn minn stóð sig vel. Ég var svo stolt af honum. Hann fékk viðurkenningarskjal og páskaegg þegar tíminn var búinn. Ekki hægt að segja að honum hafi þótt það neitt sérstaklega leiðinlegt.

Eins og venjulega, þegar börnin mín útskrifast úr íþróttanámskeiði, fékk Doddi að velja hvað hann vildi fá í matinn í kvöld. Hann var ekki lengi að ákveða sig, vildi hamborgara og ég fór með krakkana á Pítuna að borða.

Þegar við vorum hálfnuð með matinn heyrði ég lagið "Reyndu aftur" og ég sver.. ég held ég hafi ekki hlustað á þetta lag síðan ég var að kenna Julie að syngja það fyrir einhverjum ca sautján árum í US. Hvað ég sakna hennar. Sem betur fer voru krakkarnir uppteknir við að ræða um hvort væri óhollara: grænt sprite eða appelsín og tóku ekki eftir því hvað ég varð leið.

Sum tímabil í lífi manns eru eftirminnilegri en önnur. Þegar ég var að fylla út umsóknina sem skiptinemi skrifaði ég að ég reykti ekki. Ég gerði það af ásettu ráði. Ég ætlaði að hætta að reykja. Hvernig átti ég að vita að ég myndi fara inn á heimili hjá keðjureykingafólki? Það var ekki nokkur leið að sjá það fyrir.

Þegar þau komu að sækja mig út á flugvöll sat ég í fjóra klukkutíma aftur í Crystlernum og reyndi af fremsta megni að anda að mér eins miklum sígarettureyk frá Jack og ég gat. Fór helvíti mikið til spillis út um opinn gluggann á bílnum. Julie sat við hliðina á mér og fiktaði í hárbursta allann tímann. Við sögðum fátt.

Þegar við komum að húsinu tók Caroline á móti okkur og spurði Julie hvort hún vildi ekki sýna mér herbergið mitt. Julie gerði það, svo sýndi hún mér herbergið sitt. Þetta var hálf vandræðalegt allt saman og þó ég þekkti þessa stelpu ekki neitt fann ég að hún var ekki alveg eins og hún átti að sér að vera.

Við vorum búnar að rembast við að tala saman í klukkutíma þegar Julie stóð upp, fór fram og náði í eitthvað sem hún faldi fyrir aftan bak þegar hún kom inn aftur. Þeir sem þekkja mig vita að ég er forvitnari en andskotinn og ég spurði hvað hún væri með. Það kom hik á hana og svo rétti hún feimnislega fram hægri höndina. Í henni lá sjúskaður Marlboro sígarettupakki.

"Do you smoke?" spurði ég hissa/glöð/fegin. "Do you smoke?" spurði hún ennþá meira hissa/glöð/fegin. Upp frá þessu andartaki urðum við óaðskiljanlegar.

Hún sagði mér að henni hafi kviðið þvílíkt að fá þessa "fullkomnu" íslensku stelpu til að búa hjá þeim því hún var hálfgert vandræðagemsi og pabbi hennar og stjúpmamma höfðu ákveðið að fá skiptinema til að hafa góð áhrif á hana. Mér fannst þetta gjörsamlega hillarious. Sagði henni að foreldrar mínir hefðu verið búin að gefast upp á mér og ákveðið að senda mig út í lönd sem skiptinema til að losa sig við mig. Okkur verkjaði í magann úr hlátri.

Fyrsta kvöldið komst ég svo að því að það tala bara ekki allir eins og Eddie Murphy þótt þeir búi í Bandaríkjunum. Við vorum að spila Trivial Pursuit og ég var að skít tapa. Kom ekki Jack mér til hjálpar og Julie varð fúl því Jack var ekki lengi að ná yfirhöndinni og var að bursta hana í mínu nafni. "Fuck, Julie's gonna kick my ass if you get this one right", sagði ég þegar hann var að fara svara síðustu kökuspurningunni. Það varð þögn og þau störðu gapandi á mig. Eftir smá stund útskýrðu þau fyrir mér að svona segir maður ekki undir neinum kringumstæðum. "The "f" word is the foulest word in the english language".

Ég var steinhissa. Sagði þeim að á Íslandi segðu allir fokk og sjitt alveg hægri vinstri. Jack fannst þetta lúmskt fyndið en Caroline var meira skelfingu lostin. Seinna um kvöldið, inní herbergi hjá Julie, útskýrði hún fyrir mér að það væri allt í lagi að blóta eins og sjóari, bara ekki fyrir framan fullorðna fólkið. "At what age can you start swearing in this country then?" spurði ég nú bara. Julie hristi hausinn. "Anna.. there is no spesific goddam age. Jesus fucking christ.. you just don't use language like that or you'll get in trouble!"

Ég komst að því að bitch, bastard, shit, hell, goddam, Jesus og retard eru allt orð sem maður má ekki segja fyrir framan fullorðna. Sat minn share í detention fyrir foul language. Ég skildi ekkert í þessu enda finnst mér þessi orð góð og gild orð í enskri tungu og séu þau rétt notuð má gera sig vel skiljanlegan.

Þegar ég hafði verið tvær vikur í Bandaríkjunum byrjaði skólinn. Ég reykti sígarettur og hékk af þeim sökum með dópurunum, því þeir sem reyktu sígarettur í frímínútum.. þeir reyktu marjuana á kvöldin. Ég man ekki hvað oft ég lét krókódílaklemmu með jónu ganga framhjá mér því ég vissi að ef ég myndi prufa, og ef mér þætti það gott.. þá myndi ég líklega enda út á horni að húkka fyrir næsta skammti. Ég varð nógu fljótt húkkt á nikótín. Fannst það bara alveg nóg.

Julie reykti marjuana nánast daglega. Það var hennar leið að kópa við lífið, sem hún í raun kópaði ekki við. Hún var ljóngáfuð en nennti ekki að læra. Hún nennti engu nema að láta sig dreyma. Það má segja að hún hafi verið að bíða eftir að einhver kæmi og bjargaði henni frá þessu dull smábæjarlífi. Það kom engin.

Eitt af því sem við Julie áttum að gera á heimilinu var að vaska upp. Ég hálf drapst úr hlátri í fyrsta sinn sem ég átti að taka í "tuskuna" því þeir vaska upp með tusku þarna úti. Mér fannst það ferlega fyndið og einhvernvegin fór það nú svo að við Julie skemmtum okkur alltaf konunglega yfir uppvaskinu. Þá var ég að segja henni sögur af Íslandi. Að Ísland væri paradís með skemmtistöðum á hverju horni og allt fljótandi í vodka. Og strákarnir! Engar bjórvambir, engar hormottur.. hún þurrkaði diskana dreymin á svip. Í hennar augum var Ísland fyrirheitna landið. Ég skil ekki hvers vegna ég hef ekki ennþá fegnið Fálkaorðuna fyrir að vera besta landkynning sem send hefur verið erlendis á vegum skiptinemasamtaka.

Um jólin fékk ég sendan uppþvottabursta frá Íslandi og þá sprakk Julie úr hlátri því henni fannst þetta vera eins og oversized toothbrush. Ég hef aldrei litið uppþvottabursta sömu augum.

All in all.. þá held ég að Caroline og Jack hafi verið sátt við brjálaða skiptinemann með ljóta orðbragðið. Þau voru alveg ofboðslega góð við mig. Ég var ein af fjölskyldunni.

Um daginn sendi Jack mér póst sem innihélt þessa mynd sem hann hefur verið að gera, sjálfsagt til að vinna sig úr sinni sorg.

Mér þykir vænt um að hann hafi haft mig með. Ef einhver veit hvort það er viðeigandi, þá er það Jack.

En hvað maður myndi gefa fyrir one more day.

Ég þori varla að athuga hvað þessi færsla er orðin löng. Ótrúlegt hvað eitt lag getur kallað fram mikið af minningum.


| anna | 21:10 |
comments

Þetta var fallegt.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 8.04.2004 | 3:09:28 | [+] |

Takk Alan og Organisti.

Harpa. Ég gat mér til um að msn hefði verið eitthvað að stríða þér. Það var kominn tími til að fara að sofa hvort sem er...

Nr. 2 | posted by: anna | 8.04.2004 | 13:26:52 | [+] |

Takk fyrir yndislega færslu. Skil þig svo vel, þetta er svo skrítið, maður á einhvern veginn allt með þessar fjölskyldu og svo fer maður heim og lifir sínu gamla lífi breyttu áfram. Allur þessi bunki af tilfinningum, sem skapast á þessum mótunarárum manns, til fólks sem er allt í einu svo langt í burtu for the rest of it. Maður skrúfar niður en svo blossa þessar tilfinningar upp við og við.. Skrítin tegund söknuðar og samkenndar einhvern veginn.. Ég samhryggist þér.

Nr. 3 | posted by: Úllen Dúllen | 8.04.2004 | 18:00:49 | [+] |

Takk Úllen, ég hefði ekki getað orðað þetta betur. Þau verða einmitt önnur fjölskylda manns.

Nr. 4 | posted by: anna | 8.04.2004 | 18:07:29 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web