www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tilraun til sjálfsmorðs
Þriðjudagur, 13. apríl 2004

Já, ég fór í sund áðan og því miður, ólíkt og í gær, þá var opið í sundi. Í gær var hinsvegar verið að reka uppúr þegar ég mætti á svæðið svo ég keypti sundkort og fór heim. Fannst ég samt rosalega dugleg.

Í kvöld synti ég. Í þriðju ferðinni svelgdist mér á og var nærri drukknuð. Náði mér aftur á flot og áhorfendur dreyfðu sér. Ég var farin að hósta blóði eftir fjórðu ferðina en það er bara svo glatað að synda fjórar ferðir að ég henti mér aftur af stað.

Þegar ég var búin með sex ferðir fannst mér svo stutt í tíu, svo ég hélt áfram. Allt í allt synti ég FJÓRTÁN FERÐIR. Síðustu ferðina fór ég með sund-möntru sem ég bjó til og er svona:

(eitt orð fyrir hverja hreyfingu)

Ég
skal
komast
alla
helvítis
leið
þótt
það
verði
minn
bani

(endurtakist eftir þörfum)

Harla gott fyrir skrifstofublók með rassæri.

Þetta var hinsvegar too much. Komst að því þegar ég fór í gufu. Þar hóstaði ég upp öðru lunganu og þar sem ég lá í blóði mínu, með annað lungað út á kinn, kom að mér eldri maður. Hann tók mig í fangið og hljóp með mig fram í afgreiðslu þar sem konan í afgreiðslubúrinu benti honum á að fara með mig í djúpfrysti niðrí kjallara. Eftir aðeins fimm mínútur í djúpfrystinum var ég orðin stálslegin og þáði bjór og sígó sem afgreiðslukonan bauð uppá út í porti.

Gott að eiga svona tvö lungu.


| anna | 22:13 |
comments

Jamm, hreyfing er holl. weepy nerd

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 13.04.2004 | 22:52:20 | [+] |

Hreyfing er ekkert ofmetin. Iss..

Nr. 2 | posted by: anna | 14.04.2004 | 11:32:53 | [+] |

Auðvitað er hreyfing ekkert ofmetin colgate I´m all for it. Ég var nú bara að segja eitthvað til að koma útúrsnúningi á nafni netverjans að laughing

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 14.04.2004 | 11:55:18 | [+] |

Anytime my dear colgate

Nr. 4 | posted by: beggi dot com | 14.04.2004 | 11:57:42 | [+] |

embarassed

Nr. 5 | posted by: Atviksorða-Anna | 14.04.2004 | 12:01:17 | [+] |

ææææææ ég er víst að leggja í hann þessa leið.

Nr. 6 | posted by: Kristjana | 14.04.2004 | 12:33:27 | [+] |

Sjís maður ég skil ekki hvernig þú þorir þessu. Ég er allavegana búin að komast að því að þrátt fyrir alla sundkennsluna sem ég fékk þá er ég algerlega ósynd. Þar sem mig langar ekki til að drukkna þá fer ég eingöngu í heitu pottana og vaðlaugina... þá sjaldan ég fer í sund.

Ég get reyndar synt í heitum sjó, skil það ekki alveg... laughing

Nr. 7 | posted by: Þórlaug | 14.04.2004 | 19:11:24 | [+] |

Það er ekkert að marka. Ég er hálfgerður dare-devil colgate

Nr. 8 | posted by: anna | 14.04.2004 | 19:51:33 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web