Sunnudagur, 11. apríl 2004
Áður en þú byrjar að lesa það sem ég er að skrifa bið ég þig að setja þig í ákveðnar stellingar. Taktu hvaða random sýnishorn úr hvaða random bíómynd sem er. Þú ert að leita eftir djúpu, dramatísku karlmannsröddinni sem er að lýsa myndinni sem hann er að reyna að selja. Í hvert sinn sem þú sérð eitthvað skrifað innan hornklofa vil ég að þú heyrir setninguna sagða eins og viðkomandi announcer myndi segja hana. Ok?
Það er skemmtilegra þannig.
Ég er að lesa magnaða bók: [The Power of your subconcious mind]. Hún fjallar um hvað fólk getur gert ótrúlega hluti ef það trúir sjálft að það geti gert þá. Ég byrjaði reyndar að lesa hana fyrir hálfum mánuði síðan og ákvað strax að gera á mér tilraun uppá grín. Það kvöld fór ég með bæn, í fyrsta skipti í mörg ár. Ég var ekki að biðja til Guðs. Ég var að biðja til undirmeðvitundar minnar. Til að virkja [The Power of your subconcious mind].
Bænin var einföld: "Ég er 55 kg".
Takið eftir að ég segi er. Það er vegna þess að ég er að telja mér trú um að eitthvað sé veruleiki þótt það sé ekki endilega veruleiki núna. Að verða 55 kg er ekki raunverulegt takmark hjá mér. Takmarkið var að verða 60 kg. Þetta er hinsvegar ágæt tala og reyndar sú sem ég var í áður en ég byrjaði á barneignum. Mig langaði hinsvegar að sjá hvort [The Power of your subconcious mind] væri nógu magnað til að ná mér niður í 55.
Ég var 62 kg þetta kvöld. Ég hef endurtekið þessa bæn kannski í þrjú skipti áður en ég fer að sofa síðustu daga og í dag er ég 60 kg sem þýðir að ég er búin að ná takmarkinu sem ég setti mér þegar ég byrjaði í ræktinni fyrir rúmum mánuði, en þá var ég 64 kg. Ég gerði bara einn feil. Ég var ekki nákvæm. Af þessum tveimur kg hafa 1800 gr farið af brjóstunum á mér, 200 gr af lærunum. Af þessum sökum ætla ég að breyta bæninni minni. Nú verður hún svona: "Ég er 55 kg, en líka með brjóst".
Sjáum hvað [The Power of your subconcious mind] getur gert í því...
Það má segja að þessi tilraun hafi tekist, sérstaklega í ljósi þess að ég er ekki á lyfjum og ég er ekki að svelta mig. Ég bara borða minna því ég hef minni lyst á mat. Ég borða samt mat, eins og Edda getur vottað.
[The Power of your subconcious mind] er magnaður andskoti.
Ég er búin að þrífa eftir páskaeggjafárið í morgun og búin að preppa páskalambið sem ég ætla að hafa í kvöldmatinn. Þrátt fyrir lystarleysi þá hlakkar mig til að borða kvöldmatinn. Er ekki ennþá farin að fá mér af páskaegginu mínu. Unginn á því finnst mér skemmtilegur. Hallar undir flatt með skakkann gogg og með stélið út í loftið. Eins og hann sé á einhverju...
Nú ætla ég að skríða undir sæng með [The Power of your subconcious mind].