www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Spilin á borðið
Mánudagur, 12. apríl 2004

Ég er búin að vera utan við mig undanfarið eins og sumir hafa tekið eftir.

Það sem ég er um það bil að fara að gera mun gerbreyta lífi mínu.
Það sem byrjaði með appelsínugula Nintendo Donkey Kong er búið.

Snilldar bragð sem það var.

Ég get ekki sofnað og er hrædd um að það verði viðvarandi ástand. Það er ekki margt sem ég hræðist í raun og veru en svefnleysi er þar ofarlega á lista.

Ég er búin að hafa nógan tíma til að hugsa fram og til baka. Taka mér hlé og hugsa meira. Fá meiri upplýsingar að vinna úr. Ég veit að ég er að gera rétt. Ég finn það í hjartanu mínu því þegar ég var búin að segja það og gera það þannig að veruleika þá.. fylgdi léttir í kjölfarið.
Ég er döpur en ekki vegna mín.

Þegar ég var lítil var ég mikið hjá ömmu og afa á Hlíðarvegi. Um helgar spilaði fullorðna fólkið bridge við borðstofuborðið og ég fylgdist með. Mig langaði svo að taka þátt en pabbi sagði að ég yrði fyrst að fylgjast með og þá myndi ég læra. Mér fannst svo heillandi þegar Viddi frændi hneykslaðist: "hver gefur svona hunda" eða þegar pabbi spurði hlæjandi hvar mótspilarinn hans væri eiginlega, pókersvipurinn á afa, yfirfullir öskubakkarnir, kökurnar hennar ömmu, ísköld mjólk..

Þetta fannst mér heillandi heimur og mig langaði að tilheyra honum. Held að mig hafi bara langað að deila þessum glaðlegu mannlegu samskiptum þeirra sem ég elskaði mest. En ég var of lítil, skildi ekki spilið svo ég vappaði bara þögul í kringum borðstofuborðið, fylgdist með og hlustaði.

Það reyktu allir í fjölskyldunni og stundum dróst spilið á langinn og ég var orðin þreytt svo amma tók sér pásu frá spilunum, náði í sæng, bjó um mig í sófanum og kyssti mig á ennið. Ég lá undir hlýrri sænginni.. streyttist við þreytuna og hlustaði á fólkið gantast í kringum spilið, gat varla haldið augunum opnum því sígarettureykurinn sveið svo í augun.. en tilfinningin sem ég sakna er hvað mér fannst ég vera örugg í sófanum. Mér fannst ég svo örugg.

Ég vil finna þá tilfinningu aftur.


| anna | 4:52 |
comments

Vel ígrundaðar breytingar hafa oftast jákvæðar afleiðingar fyrir alla sem að málum koma! ´
Risastórt frænkuknús ........

Nr. 1 | posted by: edda | 13.04.2004 | 9:46:48 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web