www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Smooth
Fimmtudagur, 29. apríl 2004

Eftir vinnu eldaði ég kjúkling a'la Edda fyrir krakkana við mikinn fögnuð. Á eftir lagðist ég upp í rúm og velti fyrir mér hvernig ég ætti að tækla þetta verkefni. Þ.e. verkefnið sem ég er að vinna í akkúrat núna, ef ég væri ekki að blogga.

Annars er eins og einhvað spell sé á anna.is þessa dagana. Veit ekki alveg hvað það er. Skrítin komment hjá sumum. M.a. mér.

Vírusar flæða í in boxið mitt. Joy.

Ég er ennþá fíknalaus og hef aldrei upplifað jafn lítið af fráhvarfseinkennum eða jafn litla löngun. Kannski er það rétt: "practise makes perfect". Nógu andskoti oft er ég búin að "æfa" mig í því að hætta.

Ég er búin að vera í góðu skapi í dag. Annars hugar en í góðu skapi.

Ég er alvarlega.... að hugsa um... að fá mér franskan þjón.


| anna | 22:33 |
comments

Stundum held ég að ég sjái ekki hvað stendur fyrir framan mig fyrir því sem ég les á milli línanna.

Nr. 1 | posted by: anna | 29.04.2004 | 22:58:33 | [+] |

Það er það sem ég er að meina. Það er hræðilegt.

Nr. 2 | posted by: anna | 29.04.2004 | 23:02:04 | [+] |

Eða það..

Nr. 3 | posted by: anna | 29.04.2004 | 23:04:23 | [+] |

Endastöð.

Dynkirnir virtust koma frá klósettinu. Þungir dynkir. Hver djöfullinn er þetta, hugsaði ég. Hikaði og gekk í átt að klósetthurðinni. Tók í húninn. Snéri. Ólæst.

Þetta virtist ætla að verða eins og hver annar vinnudagur. Fólkið kom inn hvert af öðru. Sumir seinir. Aðrir langt fyrir tímann. Ég hugsaði hve misjafnt þetta væri - eða eins. Alltaf sama fólkið sem kom of seint. Alltaf sama fólkið sem kom of snemma. Alltaf sama fólkið sem kom á nákvæmlega réttum tíma. Allir þrælar vanans. Eða er kannski ekkert þrælslegt við þetta. Bara fínt að hluti lífsins sé vani. Sennilega, hugsaði ég. Þá er auðveldara að takast á við það óvænta. Svigrúm.

Símtal. Viltu koma til mín sem snöggvast. Þarf aðeins að ræða við þig, sagði ég í símann. Hann kom. Bar sig vel. Sló um sig. Ég spurði. Hann svaraði. Ég spurði aftur. Hann svaraði en ekki eins öruggur með sig. Ég spurði. Og spurði. Og spurði. Færri svör. Gaf sig. Lofaði bót og betrun - sem fyrr. Nú var nokkuð ljóst að ekki yrði gefið eftir. Gráa svæðið þrengt. Pressa.

Ég lauk upp hurðinni. Dynkirnir hættu. Hann hætti að berja höfðinu við vegginn og leit á mig. Uppgefinn. Búinn.

-Note: Sannleikurinn er stílfærður í nafni dramatíkur.

Nr. 4 | posted by: igor | 29.04.2004 | 23:40:19 | [+] |

Sannleikurinn er alltaf betri stílfærður.

Það er ákveðin list að stílfæra sannleikann en hafa frásögnina sanna í þeim atriðum sem skipta máli. Stundum vantar bara rétta sviðsmynd til að hlutirnir gangi betur upp. Við erum jú öll að lifa general prufu dauðans.

Nr. 5 | posted by: anna | 29.04.2004 | 23:48:24 | [+] |

Sæl Anna! Ertu til í að senda mér tölvupóst á sigga@vortex.is. Ég á við þig svolítið erindi.

Nr. 6 | posted by: Sigga | 30.04.2004 | 8:46:45 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web