www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Smá kría
Þriðjudagur, 06. apríl 2004

Það er langt síðan ég hef sofnað þegar ég kem heim úr vinnunni en það gerðist í dag. Ég ætlaði bara aðeins að leggjast upp í rúm, sofnaði og fékk martröð.

TanteDanielle.jpgMig dreymdi að ég væri orðin gömul kona, eins og ég hef ákveðið að verða einhverntímann. Ég var ekkja og átti heima á elliheimili. Allt í kringum mig var gamalt fólk sem var sátt við að vera á grafarbakkanum. Það var satt lífsdaga og naut þess að rölta um í sameiginlegum garðinum, taka í spil eða vefa körfur. Ég var ekki södd lífsdaga. Ég var reið og bitur. Ég var regular mean old woman. Starfsfólkið á spítalanum var hrætt við mig. Þorði ekki að tala við mig því ég hreytti í það ókvæðisorðum, skít og skætingi hvert tækifæri sem mér gafst.

Ég átti staf sem ég lamdi í kringum mig og yfirleitt, á endanum, í einhvern og þá kom forstöðumaðurinn til að tala mig til. Ég hataði forstöðumanninn og langaði til að drepa hann með stafnum mínum. Mér fannst gaman þegar hann kom að skamma mig. Þá gat ég látið hann heyra það og lamið í hann með stafnum mínum.

Svo var ég allt í einu stödd ofaní tómri sundlaug, nánar tiltekið í djúpu lauginni. Mér fannst eins og sundlaugin væri farfuglaheimili eða einhvers konar chrisis shelter. Allt í kringum mig var fólk sem valsaði upp úr og ofaní laugina nema ég komst ekki upp úr. Ég var föst í djúpu lauginni og alveg sama hvað ég reyndi að komast upp... ég rann alltaf niður í djúpa endann. Það var eins og ég væri ósýnileg, a.m.k. rétti engin mér hjálparhönd og engin svaraði hjálparkalli.

Ég fylltist skelfingu og reyndi og reyndi að komast upp úr lauginni sem virtist bara dýpka með hverri tilrauninni. Mig langaði svo að komast burt en ég var eins og í gildru. Fólk var hætt að koma ofaní laugina og hún var að tæmast þegar ég fann eitthvað blautt við fæturna á mér. Svo varð erfitt að hreyfa fæturna. Ég var að sökkva í drullu.

Rétt áður en ég vaknaði var ég í kistu. Hafði verið kviksett.


Ég held ég hætti bara alveg að leggja mig á daginn.


| anna | 20:23 |
comments

Halló Anna!


Mikið er gaman að sjá að þínir broskallar virka! silent

Nr. 1 | posted by: Júlía | 6.04.2004 | 23:09:23 | [+] |

Draumfarir þínar eru ekki af þessum heimi! Held að þú ættir að skella þér á sundnámskeið með Dodda.....

Nr. 2 | posted by: edda | 7.04.2004 | 15:24:55 | [+] |

Sjís maður verður hálf skelkaður að lesa þessa drauma. Myndi pottþétt spá í að sleppa því að taka kríu á daginn.

En hefur þú aldrei lent í því að fljúga í draumi? Það er puð maður, ég flýg stundum heilu næturnar, vakna síðan alveg uppgefin og voða voða þreytt í höndunum. Maður ætti kannski að láta tékka á sér doubt

Nr. 3 | posted by: Þórlaug | 7.04.2004 | 23:21:17 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web