Sitt lítið..
Miðvikudagur, 28. apríl 2004
Ég er í svolítilli sorg núna því í dag var síðasti dagurinn í skólanum. Ehh.. næst síðasti fyrir utan verkefnaskil. Næsta miðvikudag flyt ég verkefnið mitt fyrir framan þrjá dómara og þar næsta miðvikudag.. jah.. þá er útskriftin.
Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt þegar maður er á besta aldri. Eða er ég kannski komin á besta aldur? Líklega ekki. Nei örugglega ekki. Ég hef trúað því síðan ég var þrettán ára að "the best is yet to come". Ég trúi því ennþá.
Ég fór í bað áðan og henti fötum. Naglalakkaði mig. Festi Spiderman 2 plaggatið hans Dodda upp í herberginu. Vann í áætluninni minni. Ég vona að við höldum hópinn í skólanum. Ég á eftir að sakna þessara miðvikudaga með þeim.
Ef ég söknuðurinn verður óbærilegur fer ég og fæ mér pylsu í pylsuvagni dauðans.
Sem minnir mig á.. ég fékk snilldar hugmynd að smásögu í skólanum í dag. Skrifaði niður basic plottið. Ég ætla að skrifa hana á Spáni í sumar.