www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ready.. set.. GO!
Laugardagur, 17. apríl 2004

"Einu sinni eyddi ég eins litlum tíma á baðherberginu og ég gat, en eftir ég fór að taka inn colon cleanser með nýja ilmefninu eyði ég heilu dögunum á dollunni."

Ég skil ekki fyrir hvaða markhóp þessi auglýsing er. Hver eyðir megninu af deginum á baðherberginu? Regardless of how it smells.

Ég er svartsýn manneskja að eðlisfari. Helvítis lygi. Ég er bjartsýn manneskja að eðlisfari. Ég hef hinsvegar lært af lífinu að oft er betra að búa sig undir það versta.

Þá verður það sem gerist, hvað sem það er, "a breeze".

Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við bloggið á meðan ég er að koma mér fyrir. Hvort ég á að keep tabs á hvernig þetta gengur eða hvort ég á að slá þessu upp í kæruleysi og fabúlera daglegar færslur úr lífi mínu.

Ég er hrædd um að ég verði of mússí mússí eitthvað ef ég er einlæg. En ég er líka hrædd um að ég verði lögð inn á geðdeild ef ég leyfi mér að skrifa það sem mér dettur í hug. Það verður oft ansi skrautlegt.

Anything is possible.

Á morgun ætla ég að taka íbúðina í gegn með ákveðnar breytingar í huga. Já.. svo þarf ég að kíkja á stuðarann á bílnum, setja sumardekkin undir og skipta um afturljósið. Held ég sé búin að finna leið til að redda stuðaramálinu á einfaldan hátt.

Kannski maður þvoi bílinn ef veðrið á morgun verður eins gott og í dag. Ekki veitir af. Hvaða vitleysa.. vitandi af nýja ilmgjafanum inná baði er fyrirsjáanlegt að ég muni sofa í baðkerinu í nótt og færa sjónvarpið inn á salerni á morgun..


| anna | 23:57 |
comments

Elskan mín láttu þetta bara allt vaða, gott að tappa af sér. Ef svo ótrúlega vildi til að þú yrðir lokuð inni á geðdeild um stundarsakir þá er ég viss um að þú kæmir samt út í gróða. Fær maður ekki alltaf fullt af blómum og konfekti þegar maður er á spítala. wink

Speaking of, ég held maður ætti að láta leggja sig reglulega inn til að ná góðri birgðastöðu í nammiskápnum.

Nr. 1 | posted by: Þórlaug | 18.04.2004 | 10:51:09 | [+] |

Reiknaðu með því besta. Undirbúðu þig undir það versta. Þetta virkar.

Smá madness er gott. Vandinn er að halda sig rétt fyrir neðan mörkin svo maður verði ekki lagður inn. Það takmarkar svo ferðafrelsið.

Nr. 2 | posted by: igor | 19.04.2004 | 16:02:09 | [+] |

Segðu... svo fer raflost svo illa með skamtímaminnið skilst mér.

Nr. 3 | posted by: anna | 19.04.2004 | 16:15:29 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web