www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Óli
Sunnudagur, 11. apríl 2004

Sumt fólk er eins og ferskur blær. Óli og eiginkona hans eru einmitt þannig. Ég tók mér pásu frá sykursjokki barnanna áðan og lagði mig. Þegar ég vaknaði við það að Doddi kom gólandi inn í herbergi og stökk upp í rúm, ofaná mig, skrækjandi af gleði yfir því að systir hans var að elta hann... missti þráðinn... fór allavega framúr.

Mig var reyndar að dreyma furðulegan draum. Draum inní draum. Mig dreymdi að ég væri sofandi og dreymdi að ég væri að dreyma að blaðamaðurinn væri búinn að hreinsa allt út úr íbúðinni nema rúmið sem ég svaf í. Allt tómt. Ég man að það fyrsta sem ég hugsaði var: "frábært, nú þarf ég ekkert að þrífa", en það var áður en ég sá að hann hafði líka tekið tölvuna mína. Þá varð ég royally pissed. Svo pissed að ég vaknaði í draumnum og þegar ég fór fram vantað samt meirihluta draslsins úr íbúðinni. Tölvan mín var nú samt á sínum stað en ekki skjárinn. Þá vaknaði ég. Kom mér á óvart þegar ég sá að það var allt eins og ég skildi við það áður en ég lagði mig. Bygons.

Í sömu andrá og ég kom frammúr, sveipuð sæng, hrindi dyrabjallan og Óli og eiginkonan komu í heimsókn. Ég get ekki lýst því með orðum hvað mér finnst gaman að fá þau í heimsókn. Finnst blaðamaðurinn eiga "höfundarrétt" á þeim.

Verð samt að láta þetta flakka:

Óli: "Stundum hringi ég í fyrirtæki til að sækja um vinnu í gamni og þegar þeir bjóða mér 120 þúsund í laun þá tek ég þá í gegn. Já lifir þú á þessum launum auminginn þinn? Við hvern heldurðu að þú sért að tala? Einhvern nýbúa? Gaman af þessu."

Óli er eins og náttúruhamfarir. Hann býr í fjórbýli og í þessu fjórbýli bjó fólk sem honum samdi ekki mjög vel við. Þau fluttu. "Náðum þeim út á mettíma" eins og Óli orðaði það. Nema hvað að Óli sagði okkur að hann hitti þennan fyrrverandi nágranna sinn í búð um daginn. Sá aðili er fluttur í annað hverfi og Óli sagði honum að nú væri hann bara búinn að kaupa húsið við hliðina á honum!

Aumingja maðurinn. Óli var auðvitað að ljúga þessu. Hann er mest spontant lygari sem ég þekki og hann gerir það vel. Þegar Óli og blaðamaðurinn voru að vinna saman hjá Essó tók Óli sig stundum til, þegar það var lítið að gera, og fór að innheimta. Þá settist hann við símann, dró upp nótubókina og byrjaði að hringja út.

"Góðan dag, Ólafur hér, lögfræðingur Olíufélagsins. Ég er hér með skuld upp á fimmtán hundruð krónur sem þú hefur ekki staðið skil á..."

100% árangur.

Ef blaðamaðurinn kemur ekki bráðum með "best of Essó", þá gerir ég það.


| anna | 18:07 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web