www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Nýjasta tækni og vísindi
Föstudagur, 23. apríl 2004

Ég lagði mig áðan. Dreymdi alveg furðulegan draum.

Ég bjó í Kópavogi og ætlaði að fara með Jóhönnu út á Seltjarnarnes í strætó. Við tókum Dodda með í vagni. Þrátt fyrir að hann er að verða sex ára. Gleymdum vagninum upp á skiptistöð í Kópavogi og fórum úr vagninum á nálægt hlemmi.

Það sem gekk á í strætó á leiðinni var ekkert venjulegt. Þessi vagn var meira svona eins og gamalt þorp en strætó. Við föttuðum að barnavagninn gleymdist þegar við fórum út úr strætisvagninum svo ég fór að reyna að hringja úr gsm símanum mínum upp á skiptistöð í kóp.

En ég gat ekki hringt fyrr en ég var búin að verifæa eitthvað dót hjá Og Vódafón. Hringdi þangað og fékk rödd sem ég hélt að væri á teipi: "Góðan dag. Þú ert komin í samband við Og Vodafone. Til að staðfesta símann þinn þarftu að"... þangað til maður sagði: "æi ég veit ekki hvernig maður gerir þetta.. bíddu.. leyfðu mér að fletta því upp bara".

Hann gaf mér samband við konu sem sagði mér að ég ætti að opna símann og slá inn einhverjar 20 tölur. Þetta gekk mjög illa hjá mér og allan tímann sem ég var að þessu bölvaði ég Og Vodafone í sand og ösku og fattaði það svo inn á milli að konan var alltaf á hinni línunni. Bað hana afsökunnar og hélt áfram að bölva.

Skyndilega spratt út úr símanum eitthvað drasl sem átti að tákna númerin. Þetta var sýrt í meira lagi. Eins og litlir silfurlitaðir koddar með svona charms á. Það var háhælað stígvél, köttur, hús.. ég man ekki hvað fleira en einn charm fyrir hverja tölu sem ég var búin að slá inn. Og ég hef verið komin með slatta því þegar þetta gerðist, og ég sagði konunni frá því.. sagði hún að nú væri allt ónýtt. Ég þyrfti að byrja upp á nýtt.

Ég varð skaðræðislega fúl. Enda var hún fljót að segja mér að það væri til önnur leið. Bað mig að finna raufina þar sem ég get náð í tölvupóst, sem er framan á símanum (minni á að þetta er draumur) og ég fann hana. Skyndilega þaut upp símann minn nýtt sim kort! Sem ég fékk í tölvupósti! Out of the blue! Dísus hvað mér brá!

Síminn hringdi strax á eftir og það var maður í Atlanta Georgia í símanum að spyrja hvort þetta hafi virkað ?!?

Ég sagði bara "yes, I think this did the trick" og lagði á.

Rétt í því sá ég litla gröfu á götunni og utaná henni var fullt af aröbum að vagga sér við Indverska tónlist. Það hafa ekki verið færri en 30 arabar á gröfunni.

Var svo stunned að ég gleymdi að hringja upp á skiptistöð. Vaknaði.

Ég er hálf sloj eftir þetta allt saman.


| anna | 18:28 |
comments

Vááá
Thað ætti að víra thig beinleiðs við oitthvað instrument hjá skrivaraforeiningin með prentar thegar thú sevur. Pardon my Faeroeese.

Nr. 1 | posted by: ingo | 23.04.2004 | 18:50:11 | [+] |

Það er einn draumur sem stendur uppúr og ég hef aldrei gleymt. Þá sat ég við gosbrunn í hvítum kjól. Ég var Anna Karenina (mikilmennskubrjálæði?) og ég hélt á alveg rosalega fallegri spiladós. Ég opnaði spiladósina og fallegur vals byrjaði að hljóma frá dósinni.. svo fór blóð að fossast upp úr henni. Yfir allan kjólinn minn. Og það blandaðist vatninu í fossinum.

Stuttu síðar vaknaði ég.

Maður gleymir ekki svona draumum.

Nr. 2 | posted by: anna | 23.04.2004 | 19:34:11 | [+] |

Nú er ég virkilega farin að hafa áhyggjur af draumförum þínum shy

Nr. 3 | posted by: edda | 23.04.2004 | 19:40:39 | [+] |

Gvöð, ég tapaði mér alveg í þessum broskörlum, ekkert meint með þeim, what so ever.. Mér er svo illa við það að einhver leggi mér orð í belg eins og ég hef leyft þessum belgum að gera.... Það á ekki að hleypa konum eins og mér í broskarla eftir tvo bjóra.... Áfram KR gott fólk!!!!

Nr. 4 | posted by: Úllen Dúllen | 24.04.2004 | 0:15:58 | [+] |

hahahaha Úllen. Þú ert skemmtileg. happy

Nr. 5 | posted by: anna | 24.04.2004 | 0:40:46 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web