Þriðjudagur, 27. apríl 2004
Djöfuls gargandi snilld. Ég er in a zone!
Af hverju blogga ég?
For one.. þetta er frábær þjálfun í að skrifa texta.
Það er ekki séns að ég hefði getað komið svona miklu í verk fyrir tveimur árum á jafn stuttum tíma og ég hef gert í kvöld. Að blogga þjálfar mann í að koma hugmyndum niður "á blað".. smám saman fer maður fer að pikka hraðar og áður en maður veit af.. þá pikkar maður svo hratt að maður hefur í við sjálfan sig.
Góð bloggfærsla er þannig að maður fær sér sæti, opnar glugga, skrifar og publishar. Mér finnst þær a.m.k. yfirleitt bestar.
Fyrst las ég færslurnar alltaf tíu sinnum yfir, breytti eitthvað smá í hvert skipti og publishaði. Núna eyði ég ekki löngum tíma í hverja færslu. Sumar er ég í innan við tvær mínútur að skrifa. Ég laga ennþá en les yfirleitt bara yfir einu sinni áður en ég vista þetta á serverinn.
Í kvöld er ég að njóta góðs af tveggja ára bloggi. Ég er komin með allt innihald viðskiptaáætlunarinnar og á eftir að raða því smekklega saman. Það verður ekki erfitt. Það sem var erfitt var að koma þessu frá mér á skiljanlegan hátt.
Svo á eftir að koma í ljós hvort ég hafi komið þessu frá mér á þann hátt að það skilja það fleiri en ég.. hehehe