Sunnudagur, 25. apríl 2004
Ég gef mér 4,6 í einkunn fyrir sjálfsaga í dag. Það er ef ég gef mér einkunn fyrir allan daginn. Eyddi þremur mínútum í að skrifa inngang í morgun og 789 mínútum í að hugsa annað. Það er pjúra fall.
Ég rétt skríð því ég hækkaði meðaleinkunnina all svakalega í kvöld og er búin að afkasta ógó miklu undir ströngu thought-police survailance frá innra sjálfi mínu sem ákvað að step up og taka yfirhöndina. Hjúkk alveg.
Fékk 9,5 fyrir sjálfsaga seinnipartinn sem reddar meðaleinkuninni alveg.
Það er ennþá von. Ef ég held sjálfsaganum í kringum átta næstu daga.. þá verður þetta komið um helgina.
Rosalega er erfitt að eiga við sjálfa sig stundum. Og rosalega er erfitt að hugsa um það sem maður á að vera að hugsa um þegar maður hugsar alltaf um eitthvað annað..