www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Með hund á heilanum
Fimmtudagur, 15. apríl 2004

Það býr maður í blokkinni hjá mér. Ekkert merkilegt svosem.. ég meina.. það búa fleiri en ég í þessari blokk.. nema um daginn vorum við samferða inn og hann var með þann fallegasta hund sem ég hef á ævinni séð. Veit ekki hvernig hundur þetta var, svona legally blonde hundur en ekkert líkur rottu.

Mig langar í svona hund. Var að spá í að fara niður og spyrja hvort hundurinn mætti koma út að leika. Fara svo aftur og spyrja hvort hundurinn mætti vera memm. Fara svo aftur og spyrja hvort hundurinn mætti gista...

Úff hvað hann er sætur. -Hundurinn sko...

Það er á hreinu.. ég fer í það minnsta niður og spyr hvernig hundur þetta er, hvar er hægt að kaupa svona hund og hvort ég megi taka mynd af honum svo ég geti farið og sagt: "ég ætla að fá svona alveg eins", þegar ég kaupi mér hund.

Annars er ég generally annoyed þessa dagana. Stóðst ekki freistinguna og kreisti bóluna sem er búin að pirra mig til andskotans.. þessa þarna á hökunni. And I wonder.. AF HVERJU LÆRI ÉG ALDREI AF MISTÖKUNUM?

Því nú er ég komin með stórt og ljótt kýli í staðinn. Æi.. best að hengja sig bara. Eða fara að sofa...

ARRRGGGG! The agony of choice!


| anna | 0:05 |
comments

Anna plús Týri, nanana na na na toungue

Nr. 1 | posted by: Harpa | 15.04.2004 | 0:08:02 | [+] |

Hann heitir Títus eða eitthvað. Hvað ætti ég að láta minn heita? toungue

Nr. 2 | posted by: anna | 15.04.2004 | 0:10:48 | [+] |

Skírðu þinn Tíra. Þá getum við farið út að ganga með Tíra og Týra thumb up laughing

Nr. 3 | posted by: Harpa | 15.04.2004 | 0:24:36 | [+] |

Líf Organistans batnaði töluvert eftir að hann fékk hund.

Ég fór að fara með hvolpinn í göngutúra og allt í einu varð ég afskaplega vinsæll af afar huggulegum ungum konum í hverfinu. Þær koma til mín, klappa hundinum, horfa í augun á mér og segja: he is so handsome. Ég skil alveg, þær meina að ég sé myndarlegur.

Þetta eru fallegar og vel stæðar konur, rétt rúmlega fjörtíu ára gamlar, og ég veit að þær eru orðnar leiðar á eiginmönnunum. Þær eiga Bé Emm Waffa og Bensa, og krakkarnir eru á leið í college. Sumar af þessum konum hitti ég stundum á keiluvelli hér í hverfinu þar sem við leyfum hundunum okkar að hlaupa um og leika sér saman. Þá segja þær oft: he is so strong and powerful. Ég horfi beint í augun á þeim og svara brosandi: he sure is.

Svona er lífið á Amerísku úthverfi.

Nr. 4 | posted by: Organistinn | 15.04.2004 | 7:26:17 | [+] |

Þessi hundur sem ég hef augastað á verður nú samt seint kallaður strong and powerful.. hehehe

cool

Nr. 5 | posted by: anna | 15.04.2004 | 11:00:59 | [+] |

En þú ert með ofnæmi... laughing

Nr. 6 | posted by: Júlía | 15.04.2004 | 12:04:04 | [+] |

Ég hef aldrei mælst með ofnæmi fyrir hundum reyndar.. bara köttum, grasi, ryki, sumu fólki...

Læknirinn sagði mér samt að það væri nánast víst að ég myndi þrófa með mér ofnæmi fyrir hundum ef ég er eitthvað að kássast í þeim.

Ég er tilbúin að taka sénsinn. colgate

Nr. 7 | posted by: anna | 15.04.2004 | 12:41:53 | [+] |

a.m.k. fyrir þennan hund...

Nr. 8 | posted by: anna | 15.04.2004 | 13:16:01 | [+] |

ég mæli með því að þú prófir ekki. Ég er með öll þau ofnæmi sem þú nefndir + hundaofnæmi. Það er svo erfitt að skila dýrmætum fjölskyldumeðlimi aftur í búðina... oh no!

Nr. 9 | posted by: totapala | 15.04.2004 | 14:36:59 | [+] |

Sumt er þess virði að leggja líf sitt að veði!! OFnæmi or not....
Hundar eru fallegir, krúttlegir, knúsulegir og veita öryggiskennd EN það er erfiðara að koma þeim í pössun en fjórum illa uppöldum börnum. Þeir eru sóðar sem þarf að hirða upp eftir (KÚKINN) - það þarf að baða þá hundrað sinnum í viku til þess að vinna á hundaskítalyktinni, svo þarf að snyrta þá og klippa. ÞAÐ þarf að fara út með þá nákvæmlega sama hvernig viðrar sour
EN jú jú girnileg krútt!
Anna mín - ókeypis ráðgjöf frá mér til þín: Fáðu þér hundamynda screensaver og background.
Hundar eru fyrir þá sem vita bara ekkert hvað þeir eiga að gera við tímann sinn!
colgate

Nr. 10 | posted by: edda | 15.04.2004 | 14:41:23 | [+] |

Mikið held ég að það sé rétt hjá þér Edda. Takk fyrir ábendinguna. En ég get nú samt farið og spurt eftir honum og fengið að leika smá... angel

Nr. 11 | posted by: anna | 15.04.2004 | 14:48:41 | [+] |

Anna mín ég skil fullkomlega ást þina á dýrinu og þegar maður eignast svona dýr þá veður maður eld og brennistein fyrir það. Hundurinn verður eins og barnið manns en bara miklu léttara í uppeldi en blessuð börnin. Það þarf ótrúlega lítið að hafa fyrir svona yndi og ánægjan sem svona dýr veitir manni er margföld á við það sem leggja þarf á móti; og ofnæmið manneskja mín; það eru mörg dæmi um öll möguleg ofnæmi en ekki hundaofnæmi. Segðu mér hvernig hann leit út; heldurðu að hann sé eins og mínur dásamlegu hundar; þú sérð mynd af þeim í DV á miðvikudögum. Ég er viss um að hann er þannig en maður kolfellur fyrir þeim. Er hann nokkuð eins og hún vinkona okkar í Beðmálinu á? Lýstu honum og ég skal segja þér hvaða tegund hann er og allt um hann. Ég er forvitin.
Begga

Nr. 12 | posted by: Begga | 16.04.2004 | 0:45:51 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web