Föstudagur, 09. apríl 2004
Ég skrapp með krakkana út úr bænum í dag. Förinni var heitið í Húsalind, þangað til við villtumst, svo ég hringdi í Eddu.. kom í ljós að hún sagði bara ekki Húsalind heldur Skjólsalir. Hvernig mér tókst að misheyra svona er beyond me.
Þegar við komum, um klukkan ellefu, var Edda búin að vippa upp gómsætum morgunverði fyrir okkur sem við borðuðum áður en við klipptum á púsl pokann og fórum að púsla.
Það var ekkert smá gaman í dag. Við Edda að kjafta og púsla og krakkarnir að leika sér. Við sátum með kók, snakk, súkkulaði og annað góðgæti. Ég minntist á að þetta væri nú eiginlega ekki by the good book. Fólk ætti, held ég, ekki að troða sig svona út á föstudaginn langa.
"By-gons," sagði Edda, "það þýðir ekkert að lifa í fortíðinni."
Það er punktur...
Við Edda erum náskyldar, þótt það sjáist ekki utaná okkur, við höfum hinsvegar DNA próf til sönnunar skyldleika okkar. Ég komst að því í dag að það getur verið hættulegt að tala við skyldmenni sem hefur minni og á sönnunargögn.
Seinnipartinn í dag kom miðdóttir Eddu á nærfötunum til okkar og vildi fá vatn.
Edda: Hún væri alveg eins og Þú.
Anna: Hvað meinarðu?
Edda: Nú hún tætir sig alltaf úr fötunum og valsar um allt á nærfötunum.
Anna: Ég man ekki eftir að hafa verið svoleiðis.
Edda: Jú.. oh.. þú varst alltaf í allt of litlum undirkjól og nærbuxum.
Anna: Neee.. ég man ekki eftir því.
Edda: Láttekki svona. Þú hefur fengið þennan undirkjól þegar þú varst þriggja ára og þú fórst ekki úr honum fyrr en þú varðst átta!
Anna: Áttu mynd þessu til sönnunar?
Edda: Já!
Og sjá.. exhibit A. Frá vinstri: Eysteinn, bróðir Eddu, Edda og Anna.
Hrikalegt að eiga skyldmenni sem muna svona hluti. En ég get ekki þrætt fyrir þetta. Mundi auðvitað eftir undirkjólnum þegar ég sá hann, (sést ef þú rýnir í myndina) ég er í honum utanyfir nærbolnum. Amma Fanney gaf mér hann og mér fannst hann svo fallegur.
Anna: Já þessi! Ég man eftir þessum undirkjól. Það er ekkert skrítið að ég hafi alltaf verið í honum. Þetta er svona prinsessu undirkjóll og ég ætlaði alltaf að verða prinsessa. Ég átti bara ekki prinsessukjól svo ég varð að láta undirkjólinn duga.
Edda: Já. Hildur (dóttirin á nærfötunum) ætlar líka einmitt að verða prinsessa. Svo þegar hún er búin að giftast prinsinum sínum ætlar hún að stinga undan mér og giftast pabba sínum.
Anna: Kræf...
Edda: Finnst þér?
Ég fékk lánað albúmið þar sem þetta er líklega eina myndin sem til er af mér í þessum blessaða undirkjól. Sem ég man eftir að var í henglum þegar mamma hefur líklega látið hann hverfa endanlega til að koma í veg fyrir að ég myndi vilja ferma mig í honum.
Ég fann þessa mynd líka í albúminu. Verð að hafa hana með, fyrir mig. Ég veit ekki hvað ég er að gera þarna.. augljóslega er ég að heilsa að hermannasið.. en af hverju.. ja.. Edda.. mannst þú hvað við vorum að gera?
Við púsluðum og púsluðum en kjöftuðum eiginlega meira. Edda eldaði handa okkur kjúkling í kvöldmatinn og ég hef bara aldrei smakkað annað eins lostæti. Eins gott að ég fór í teygjubuxum! Edda er snillingur í eldhúsinu og ég vissi að ég myndi borða yfir mig, þrátt fyrir lystarleysi undanfarna daga.
Þar sem við kláruðum ekki púslið (Who Did It? 2000 stk) hefur það verið ákveðið að ég komi aftur í fyrramálið svo við getum haldið áfram. Stefnan er að klára púslið fyrir fimm.