www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Matur
Mánudagur, 19. apríl 2004

Þvert á ráðleggingar læknisins míns hef ég verið að hugsa og ég hef meira að segja komist að niðurstöðu. Það verður kjúklingur í matinn annað kvöld.


| anna | 14:12 |
comments

Hvaða skipulagsæði er þetta kona, ég er ekki einu sinni farin að spá í hvað verður með síðdegiskaffinu í dag hvað þá kvöldmatinn.

Það er hættulegt að hugsa of mikið og þú átt að vita betur en að gera ekki eins og læknirinn segir þér.
toungue

Nr. 1 | posted by: Þórlaug | 19.04.2004 | 14:55:03 | [+] |

Já ég veit. Er líka búin að sitja hér með bakstur á heilanum í klukkutíma. Ég er hætt þessu. Hef bara pizzu í matinn for the rest of my life! clown

Nr. 2 | posted by: anna | 19.04.2004 | 15:19:43 | [+] |

Stundum vill maður bara.

Stundum er maður bara í þannig skapi. Getur ekki skýrt það neitt nánar. Ég var til dæmis á gangi í gær og settist á pöbb. Pantaði bjór. Fljótlega kemur par að næsta borði. Sest. Af útlitinu að dæma gæti það hafa verið frá Frakklandi. Maður byrjar að gera sér mynd í huganum. Sælkerar. Rómantík kemur upp í hugann. Þau panta. Eina kók. Einn bjór. Einn skammt af frönskum.

Stundum vill maður bara - franskar.

Nr. 3 | posted by: igor | 19.04.2004 | 16:29:40 | [+] |

Oh já. Ég gerði þau stóru mistök að panta mér natchos síðast þegar ég sat á bar en mig langaði raunverulega í franskar og þegar þjónninn kom með natcho-ið mitt fór hann með franskar á næsta borð í leiðinni.

Ég var alvarlega að hugsa um að segja honum að þetta væru mistök.. ég hefði átt að fá franskar líka. Kunni ekki við það.

Franskar og tómatsósa er eitt það besta sem ég fæ. Ég ætla að hafa franskar með kjúklingnum...

Nr. 4 | posted by: anna | 19.04.2004 | 16:35:18 | [+] |

Ekki gleyma að hamborgarinn - m/dijon eða án - sest á huppinn! Það eru allir svo góðir við þig og vilja sjá þig í sjálfsindulgance. Veitir kannski ekki af að strjúka sjálfinu hraustlega inn á milli.

Er það bara af því við sjáum okkur í þér og erum að óska okkur þessa til handa okkur sjálfum? wink thumb up

Nr. 5 | posted by: Atviksorða-Anna | 19.04.2004 | 17:41:06 | [+] |

Á huppinn? Hvað er nú það? Ég tók sko aldrei líffærafræði í skóla wink

Ég er annaðhvort í severe fráhvörfum frá kókneyslu síðan í gær.. eða að verða veik. Ég hallast að fráhvörfunum. Mér líður betur eftir eitt kók glas og franskar kartöflur með spældu eggi úps.. eða átti það að vera spælt egg með frönskum?

Ég hugsa of mikið um mat. Ég er svona emotional eater eins og Oprah er alltaf að finna í stúdíóinu sínu. Það er eitthvað að. Verst ég veit ekki hvað það er. Ég húki á stól með sígarettu í munnvikinu og kók glas á borðinu og.. veit ekki hvað er að.

Ég hélt að ég væri bara overall happy. Svona kemur maður sjálfum sér stöðugt á óvart. Kannski ég fari í bað. En í alvöru. Þetta er stórmerkilegt fyrirbæri og ég er viss um að ef ég skrifa í fimm mín í viðbót geti ég fundið út hvað er að mér.

Málið er að mér hættir til að borða meira þegar mér leiðist. Og ég þarf ekki að hugsa mig lengi um til að fatta að já.. mér leiðist. Hvað er það sem mér leiðist svona mikið? Hvað langar mig til að gera, fyrir utan að fara í bað sem er given..

Og skyndilega fatta ég hvað er að.

Ég vil klára eitthvað sem er humanly impossible að klára fyrr en ákveðið annað mál leysis og það er ekki undir mér komið. Ok. Mér líður betur. Ég veit hvað er að pirra mig. Aðgerðarleysi. Ætli ég sé ekki að svífa í maníu bara. Oh það er svo gaman.

Ég ætla samt í bað. Aðallega því ég borðaði yfir mig og get ekki hreyft mig nema í vatni.

Verð samt að spyrja þig að einu Igor: Hef ég unnið fyrir þig?

Emotional eating paranoid manic with an active imagination.

Hvernig í fjandanum getur mér leiðst??? what

Furðulegt hvernig leiði sækir að manni bara við vissar aðstæður. Til dæmis leiðist mér oft þegar ég er að keyra til Keflavíkur að sækja einhvern út á flugvöll en mér leiðist aldrei þegar ég er að lifa kynlífi. Eða.. svo gott sem aldrei. Maður er nú misjafnlega upplagður. En ég hugsa aldrei um mat í rúminu og ég hugsa eiginlega alltaf um mat á leiðinni til Keflavíkur.

Nema þegar ég er með góða tónlist í bílnum. Verð að muna það næst. Eiginlega getur tónlist reddað mér á hvaða vígvelli sem er. Það er list að spila réttu tónlistina á réttu andartaki.

Ég sé að ég hefði betur bara átt að blogga þessu.. og ég er farin að hallast aftur að veikindum. Kókið er ekki að geraða fyrir mig.

Nr. 6 | posted by: anna | 19.04.2004 | 18:39:11 | [+] |

Víkur nú sögunni í frönsku Alpana. Más og blás. Maður birtist í fjallhlíð. Hann er að niðurlotum komin en heldur áfram og heldur samt dauðahaldi í litla skál. Fjallakofi blasir við og maðurinn þokast með erfiðismunum að kofanum. Bank. Bank. Dyrnar opnast eftir drykklanga stund. Franskt glæsimenni stendur í hurðinni.

Franskt glæsimenni: Hvað get ég gert fyrir þig? (lauslega þýtt úr frönsku.
Þreytti maðurinn: Er anna við?
Franskt glæsimenni: Já (lauslega þýtt úr frönsku).
Þreytti maðurinn: Get ég fengið að tala við hana?
Franskt glæsimenni: Hvert er erindið? (lauslega þýtt úr frönsku).
Þreytti maðurinn: Ég er með sendingu til hennar.
Franskt glæsimenni(kallar): anna, það er hérna þreyttur maður með sendingu til þín (lauslega þýtt úr frönsku).
anna(kallar): Francois, spurðu hvað hann heitir, ég kannast ekki við að ég eigi að fá neina sendingu hingað í fjallakofann í frönsku Ölpunum?
Franskt glæsimenni: Hvað heitir þú og hvað ertu að sendast með?(lauslega þýtt úr frönsku)
Þreytti maðurinn: Ég heiti igor og er með súkkúlaðisósu fyrir önnu til að setja út á ísinn með jarðaberjunum og bláberjunum.
Franskt glæsimenni(kallar): Hann segist heita igor og segist vera með súkkulaðisósu fyrir þig út á ísinn með jarðaberjunum og bláberjunum.
anna(kallar): Oh já, segðu honum að ég liggi hérna nakin á tígrisfeldinum og nenni ekki fram. Taktu við sósunni og þakkaðu honum fyrir frá mér.
Franskt glæsimenni(tekur skálina með sósunni): Takk fyrir sósuna.
igor: Leggur af stað niður frönsku Alpana og hugsar "hvernig getur henni leiðst hér í frönsku Ölpunum liggjandi á tigrisfeldi borðandi ís með jarðaberjum og bláberjum og súkkúlaðisósu".

Nr. 7 | posted by: igor | 19.04.2004 | 22:10:27 | [+] |

E.s. nei, þú hefur ekki unnið fyrir mig, svo ég viti, nema kannski úthlutað mér lénum.

Nr. 8 | posted by: igor | 19.04.2004 | 22:13:03 | [+] |

Áhugavert. Setningin var upprunalega "Ég vil borða hann á meðan ég ligg nakin á tígrisdýraskinni við arineld í frönsku ölpunum."

En ég tók út "nakin" áður en ég póstaði og hugsaði með mér: þeir sem sjá mig ekki fyrir sér nakta á feldinum eiga það hvort sem er ekki skilið. MÚHOHOHO

Annars er ég ekki svona dónaleg þó ég geti verið erfið í símann í vinnunni. Ég fæ borgað fyrir það. Ég hefði sagt Francois að bjóða þér inn með sósuna. Ekki spurning. Þú hefðir fengið ís skeið og þér hefði verið vísað á feldinn. Þann franska myndi ég senda eftir eldivið eða út bera vax á skíðin, tékka á klósettpappírsbyrgðunum eða eitthvað.

Enda er Francois bara good for one thing. Ég er löngu hætt að nenna að tala við manninn. wink

Nr. 9 | posted by: anna | 19.04.2004 | 22:48:35 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web