www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Matarboð
Laugardagur, 17. apríl 2004

Ég fékk sjúklega góðan mat í kvöld, skemmtilegan félagsskap og góða tónlist. Getur maður beðið um meira? Ég held ekki.

Í ofanálag fékk ég skemmtilegan leigubílstjóra (sem er ekki sjálfgefið) sem kallaði mig drottningu (já Valdi.. DROTTNINGU). Eh.. ég var reyndar með uppsett hár sem gerir mig ansi "regal", samt ekkert líka drottningu Englands. Já.. og magnaður andskoti. Hann keyrði Valda og Hörpu út á hótel og mig á BSÍ á eftir, eins og ég bað hann um. Ég sýndi honum e-kortið mitt og spurði hvort hann sæi ekki bláa glow-ið sem umlukti mig. Hann sá það strax. Ég er útvalin, það er ekki fokking spurning.

En magnaði andskotinn er að eftir BSÍ þá bara keyrði hann vestur í bæ. Ekki bað ég hann um það.. en þegar hann kom að Melabúðinni.. þá sagði ég honum að beygja og spurði hvernig í fjandanum hann vissi hvar ég væri í bænum. Hann leit steinhissa á mig. "Þú ert í vesturbænum, er það ekki?"

????????

Ég hef aldrei séð þennan mann áður.

Fékk "Something Beautiful" með Íslands óvininum Robbie á heilann og er að hlusta á það "as I type". Þetta lag.. dásamlega leti-beat sem ég bara fíla í botn. Fær mig til að brosa. Mér finnst Robbie góður og I don't give a rat's ass hvort hann fílar Ísland eða ekki. Kemur málinu ekki við.

Ég ætla að stilla líf mitt eftir þessu beat-i.

Nice and easy..

Valdi: "Áttu eitthvað gott í klofið á mér?"
Gestgjafi: "Já það gæti hugsast"
Anna: "Þarna er setning sem ég kæmist ekki upp með að segja án eftirmála"

Þeir voru að tala um hesta. Hvernig átti ég að vita það?

Mig langar að nota tækifærið og þakka þeim sem fann upp mp3 og lúppu.

"If you can't wake up in the morning"...

Ég er ekki þreytt. Mig langar ekki að fara að sofa...


| anna | 6:15 |
comments

Ritað í Ráðhúsi Reyjavíkur....

Takk fyrir síðast wave
Annars held ég að þessi leigubílsstjóri hafi ekki verið alveg svona klár þótt hann hafi vitað að þú ættir heima í vesturbænum......
við sögðum honum þegar við kvöddum að aka þér svo á Hagamel toungue

Nr. 1 | posted by: Harpa | 17.04.2004 | 15:12:56 | [+] |

Það hlaut að vera! Sjís ég er dauðfegin. laughing

Nr. 2 | posted by: anna | 17.04.2004 | 16:27:06 | [+] |

(ég var of upptekin við að ulla á Valda til að taka eftir því)

Nr. 3 | posted by: anna | 17.04.2004 | 16:31:10 | [+] |

Já og TAKK FYRIR SÍÐAST! wave

Dísus.. ég kann mig ekki...

Nr. 4 | posted by: anna | 17.04.2004 | 19:58:17 | [+] |

Hvaða hvaða auðvitað veit leigubílstjórinn hvar drottningin á heima það er ekki annað hægt í svona litlu landi.

Svo veistu Anna ef þig vantar eitthvað gott í klofið þá geturðu alltaf leitað til okkar. laughing

Nr. 5 | posted by: Þórlaug | 17.04.2004 | 20:56:35 | [+] |

Ekki slæmt að vita.. ekki slæmt.. wink

Nr. 6 | posted by: anna | 17.04.2004 | 22:23:07 | [+] |

God save the queen, we´re at your service clown

Nr. 7 | posted by: Þórlaug | 17.04.2004 | 23:57:49 | [+] |

MÚHOHOHOHO clown

Nr. 8 | posted by: anna | 18.04.2004 | 0:29:22 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web