www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Magadans
Laugardagur, 10. apríl 2004

Við Edda kláruðum ekki púsluspilið í dag, en ég mætti með dúkinn minn og plaggata rúlluna og við rúlluðum upp því sem við erum búnar með og ætlum að klára þetta seinna. Ég hef komist að því ég að er bara púslu wannabe við hliðina á Eddu. Hún er púslu guð.

Edda sagði mér svolítið athyglivert í dag. Hún sagði mér að magadans væri brjálæðislega gott workout fyrir magann. Ég ætla að læra magadans. Mig vantar einmitt gott workout fyrir magann.

Auk þess stendur í mér færsla sem Már færði fyrir einhverju síðann. Þegar hann var að lýsa því að þegar hann vaknaði var konan hans að dansa magadans í morgunsólinni. Mér fannst það svo falleg færsla.

Páskaeggin hlaðast upp í stofuskápnum, krakkarnir eru komin með fimm á mann. Ég býð ekki í sykursjokkið sem verður í gangi á morgun. Það verður hvorki fallegt né hljóðlegt.

Ég fæ eitt páskaegg og það er frá afa úlfi. Hlakka til að sjá málsháttinn minn.


| anna | 18:00 |
comments

Takk fyrir gott og gagnlegt tip. Tel mig vera búna að fjölga mannkyninu nóg. - Í bili.

Ég ætlaði einmitt til Josy, það fer mjög gott orð af kennslunni hjá henni. smile

Nr. 1 | posted by: anna | 13.04.2004 | 22:08:32 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web