www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Madder
Fimmtudagur, 08. apríl 2004

61 kg.

Doddi fékk páskaegg í verðlaun fyrir að vera duglegur hjá læknunum upp á bráðavakt um daginn. Það fyrsta sem hann gerði þegar hann var búinn að opna það var að koma og færa mér blómaskreytinguna sem var framaná egginu. Ég veit ekki af hverju en svo virðist vera að drengurinn hafi af því þungar áhyggjur að ég fái ekki blóm reglulega.

Sagði pabba sínum í dag að hann ætlaði að gefa mömmu blómin af púka páskaegginu sem afi úlfur kom með handa honum og að honum fyndist pabbi ekki nógu duglegur að gefa mömmu blóm.

"Strákar eiga að gefa stelpum blóm". Ég veit ekki hvaðan hann hefur þetta, hélt að börn lærðu það sem fyrir þeim er haft. Kannski er einhver rómantískur leikskólakennari að reyna að gera þessa stráka að alvöru draumaprinsum framtíðarinnar, hver veit.

Þetta með hvort maður eigi að fá blóm eða ekki. Ég þekki engan sem finnst það beinlínis leiðinlegt að fá blóm. Mér finnst sjálfri gaman að gefa fólki blóm. Fæ minna af þeim sjálf.

Veit að ég yrði líklega ekkert glöð ef ég fengi blóm á hverjum degi. Ekki heldur ef ég fengi blóm í hverri viku. Ekki heldur ef ég fengi blóm fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Það er svo orðið of langt á milli að fá blóm fyrsta sunnudag janúars á tveggja ára fresti. Það er örugglega eitthvað balance til. Ég veit bara ekki hvað það er.

Það lítur samt út fyrir að Doddi muni sjá um að gleðja mig með blómum í framtíðinni því áðan vorum við að kúra saman uppí rúmi og þá sagði hann mér að bráum kæmi sumarið og þá gæti hann sko oft gefið mér blóm. Hann þyrfti bara að passa sig á geitungunum þegar hann er að ná þeim...

Tóti er farinn á djammið. Ákvað að skella sér í eftirpartíið hjá sugababes. Ég nenni ekki að fara.

Ég er hinsvegar að fara að djamma með krökkunum. Er um það bil að fara að spila Madder með Groove Armada fyrir þau og veit að það verður mikil gleði. Komst loksins að því hvaða snilldar lag þetta er í byrjuninni á Rayman 3 Hoodlum Havoc.


| anna | 22:53 |
comments

Ég fékk páskaegg í verðlaun í gær. Dóttirin fór á Sugababes tónleikana og strákurinn stóð fyrir spurningakeppni. Ég vann konuna 7-6 og fékk páskaegg númer fjögur í verðlaun. Í því var málsháttur:

"Svo má góðu venjast að gæðlaust þyki".

Mikill sannleikur í þessu sem maður upplifir á hverjum degi allt umhverfis sig. Og sennilega hjá manni sjálfum líka.

Þegar ég var 8 ára fékk ég páskaegg númer 8. Á páskunum þar á undan gerðist eitthvað gagnvart páskaeggjum því ég gat ekki borðað páskaegg í mörg ár. Þar á meðal þetta númer 8. Ég setti það því upp á hillu í plastinu og þar var eggið í mörg ár. Þegar vinirinir komu í heimsókn þá horfðu þeir á páskaeggið eins og það væri guð. Langaði í það. Ég gaf mig ekki. Egginu henti ég þegar ég var 12 ára. Þorði ekki að borða það.

Ég hefði ekki verið hissa ef málshátturinn í egginu hefði verið:

"þar fór góður biti í hundskjaft"

Nr. 1 | posted by: igor | 9.04.2004 | 9:55:09 | [+] |

Mér finnst þú alveg stórmerkilegur Igor. Stórmerkilegur og ferlega skemmtilegur.

Ég veit hinsvegar alveg af hverju þú borðaðir ekki páskaeggið. Fyrst það var númer átta.. þá hefur það verið frá Góu. colgate

Nr. 2 | posted by: anna | 9.04.2004 | 9:59:33 | [+] |

oh no! ég reyndi að standast það, but alas: ég er búin að lesa málsháttinn minn!!! Sem þýðir að ég er búin að éta eggið líka weepy

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 9.04.2004 | 14:58:12 | [+] |

NEI! Ég meina.. frá Mónu smile

Nr. 4 | posted by: anna | 9.04.2004 | 15:48:17 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web