www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Let's groove tonight
Laugardagur, 24. apríl 2004

Krakkarnir eru að horfa á myndina The Emperor's New Groove, á ensku, og ég sit hér skellihlæjandi. Þessi mynd er hillarious.

Finn samt ekki mitt groove. Skrif groove. Skóla-skrif-groove. Er að spá í að fara í bað.

Sem er hámark hugmyndaleysisins. Nema ég fái hugmynd í baði?
Kannski finn ég groov-ið mitt þar?!?

Oh.. ég er búin að skrifa milljón stikkorð og ég veit að ég þarf bara að taka þau og endurraða þeim og þá er ég komin með texta sem gengur. Það er næstum allt í þessum stikkorðum sem skiptir máli. Bara.. í hvert sinn sem ég fæ mér sæti þá endurraða ég engu.. ég bara bæti við nýjum stikkorðum. Ég þyrfti að þekkja einhvern gjörsamlega hugmyndasnauðan aðila sem gæti tekið að sér að raða þessu saman. Gera vegg úr þessari steypu. ..eða.. steypu ryki öllu heldur.

Það er samt að komast aðeins betri mynd á þetta.. aðeins.. já... dettur mér í hug..

NEI! Þetta gengur ekki! Djöfull. Best ég fari í bað. Froðubað. Þegar maður er svona desperate.. þá dugar ekkert annað en froða.


| anna | 21:10 |
comments

How STRANGE can it be? Mér finnst gaman að velta fyrir mér skrítnum hlutum. Hlutum sem virðast furðulegir. Eru það kannski ekki. Maður veit aldrei.

Í kvöld. Ég er að lesa Song of the week. Billy Joel. Minn uppáhaldssöngvari. Þú velur Just the way you are. Lag af minni uppáhaldsplötu. Ég leita að albúminu á Google leit: "Billy Joel Stranger 1977" til að finna textann í laginu "The Stranger" á sömu plötu.

Niðurstaðan: "http://www.sharingthegroove.org/msgboard/showthread.php?s=&threadid=52321".

Þá ert þú að skrifa færsluna ""Let's groove tonight" og ég fæ niðurstöðuna "sharingthegroove".

Duló.

Nr. 1 | posted by: igor | 25.04.2004 | 1:15:53 | [+] |

Já, duló. Það minnir mig á eitt. Nei tvennt.

Fyrst London, England. Datt í hug að fara í bíó. Eitt af þessum við Leicester Square. Settist. Ljósin slökkt. Myndin byrjar og eitthvað fólk sest við hliðina á mér. Ljósin kveikt. Ég stend upp og þá situr við hliðina á mér gömul vinkona mín frá Íslandi.

Tokyo, Japan. Ég er á röltinu og fer inn í Sony bygginguna í borginni. Efsta hæð. Verið að kynna fyrstu HDTV sjónvarpstækin. Fyrir framan tækin stendur fólk í svona einskonar hálfhring. Maður að kynna tækin. Fólkið horfir á. Ég treð mér á milli og tek þátt í forvitninni. Verður starsýnt á mann á hinum endanum sem horfir furðulega á mig. Er þar ekki mættur gamall kunningi frá Íslandi.

Lítill heimur.

Nr. 2 | posted by: igor | 25.04.2004 | 1:32:06 | [+] |

Þetta er svo satt hjá honum að það er ömurlegt. Ég get ekki hlustað á þetta lag án þess að verða leið. Þess vegna hafði ég það ekki með.

Ég fíla líka Scenes og held uppá Don't Ask Me Why.

Æi hann er bara svo frábær. Ég held að hann sé skemmtilegur náungi. Væri alveg til í að kynnast honum. En ég bara má ekki vera að því. WAHAHAHAHA

Don't look for answers.. you took your chances.. don't ask me why.

Já.. mér finnst líka I don't want to be alone alveg frábært. Hann nær þeirri stemmingu upp á tíu. Töff lag líka.

Nr. 3 | posted by: anna | 25.04.2004 | 2:14:12 | [+] |

...og ekki gleyma "It's Still Rock'n Roll to Me", sem auðvitað er besta Billy Joel lagið smile

Nr. 4 | posted by: Kristó | 25.04.2004 | 13:41:56 | [+] |

Já gott lag!

Ég er búin að hlusta á Billy Joel í allan dag so far. Og er ennþá á leiðinni í bað!

Nr. 5 | posted by: anna | 25.04.2004 | 13:44:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web