www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Leppalúðar
Fimmtudagur, 01. apríl 2004

Við Tóti eigum miða á sugababes og passa í eftirpartíið og nennum hvorugt að fara.

Tóti: Vilt þú ekki fara með Jóhönnu bara?
Anna: Getur þú ekki gert það?

Okkur er ekki við bjargandi.

Er að hlusta á sugabeiburnar syngja Too lost in you, sem mér finnst brjálæðislega flott lag. Úff.... já Úff Harpa!

Já. Doddi reis upp á þriðja degi og fór að ganga. Alheill. It's the sickest thing. (ok á fjórða degi hefði verið politically correct.. en ekki eins Mel-legt. Má maður reyna að vera "in"...)

Ég heyri raddir. Ó hjúkk.. bara sjónvarpið.

Oj! Tóti kom áðan og bað mig að fara út í ísbúð að kaupa handa sér shake. Ég, móðir Theresa, sagði já án þess að vita út í hvaða viðbjóð ég var að róta mér. Banna reykingar hvað.. það á að banna fólki sem lyktar eins og viku gamalt sorp að innan að leysa vind! Stóð í þvögu í ísbúðinni og fann þann ógeðslegasta stink sem ég hef á ævinni fundið. Sem er lygi. Ég bý með manni sem leggur sitt á vogaskálarnar við að eyða ósónlaginu en.. ég er vön þeim eitur-gas-árásum. Ef ég væri gyðingur myndi ég láta ógilda hjónabandið á þessum grundvelli. Hvað vakir fyrir fólk sem fer út í ísbúð til að prumpa??? Djöfuls viðbjóður. Fólk kann ekki mannasiði. Það var silent. We never had a chance.

Horfðum á Office áðan. David er snillingur. Hann er æði. Hann er Guð. En hann á bágt og mikið af því. Komin tími til að gera grín af fingrasmellandi stælóttum hálfvitum. Mér fannst best þegar honum var boðið að halda fyrirlestur.

WAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAIHÆÆFH

DJÖFULL

Og Gareth. Ó MÆ GOD! Maðurinn er lúser lúseranna. Það ætti að reisa honum styttu á Nelly's.

Ég held að ég hafi fengið eiturgufurnar úr rassgati viðrekstursins í ísbúðinni beint upp í heila. Það er illa fyrir mér komið. Best að pakka sér inní svartan ruslapoka og setja sig í sótthví.

Ég veit ég fæ martröð í nótt. Miklar líkur á að mig dreymi prumpushake. Djöfuls viðbjóður. Mér er óglatt.


| anna | 23:01 |
comments

Gott að heyra að Doddi er risinn upp á þriðja degi svona m.t.t. páskanna. angel

Nr. 1 | posted by: Harpa | 2.04.2004 | 0:08:39 | [+] |

ég skal fara með jóhönnu á sigarbabes!?!

Nr. 2 | posted by: Juæia | 2.04.2004 | 11:34:10 | [+] |

Gott að heyra að Doddi frændi sé byrjaður að ganga (á ný).
Ég þekki svo eina aðra Jóhönnu sem langar að hitta sykurskvísurnar, en er þetta ekki bara orðin spurning um hvort við frænkurnar skellum okkur bara í sykurdressið og skellum okkur á sykursæta tónleika og syngjum brjálað með (kann að vísu ekki eitt einasta lag með þeim)?

Datt í hug hvort þú gætir ekki hannað eitthvað flott skilti í ísbúðarglugga sem stendur á "Fredingar bannaðar" - já einmitt svona eins og gömlu límmiðarnir sem stóð á "Reykingar bannaðar". Hvað með t.d. galdradúkku sem er bara rass með eiturgufum. Smá vangaveltur nerd

Nr. 3 | posted by: edda | 2.04.2004 | 17:14:42 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web