Kannast við þig.. kem þér ekki alveg fyrir mig...
Mánudagur, 26. apríl 2004
Það er nú ekki alveg allt í lagi með mig. Hringdi maður í mig áðan:
Maður: "Hæ... hvað segir þú gott"
Anna: "Hæ.. allt fínt" [Hugsar: ok.. ég á að þekkja þennan mann. Kannast svakalega við röddina.. kem henni ekki alveg fyrir mig]
Maður: "Þú hefur tekið eftir því að ég er ekki í dag"
Anna: "haaa"
Maður: "Þetta er kerfisstjórinn þinn"
Anna: hlær "sjís.. ég vissi að ég þekkti röddina.. kom henni bara ekki alveg fyrir mig"
Maður: "Já hva.. við erum ekki búin að vinna saman nema í nokkur ár"
Christ...
Já. Þetta með að ég sé hraðlygin. Það er lygi.