www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hrafninn flýgur
Miðvikudagur, 07. apríl 2004

Það er Hrafn sem býr á höfuðborgarsvæðinu og hann eltir mig.

Ég held að hann sé með skráð lögheimili á þakinu á Háskólabíó.. a.m.k. sé ég hann oftast þar. Stundum kemur hann fljúgandi niður þegar ég er fyrir utan Tæknigarð og fær sér sæti ofaná ljósastaur og gargar á mig. Alveg er ég viss um að þetta sé prins í álögum en ég veit ekki hvað ég á að gera til að ná honum úr fuglshamnum.

Nú er svo komið að ég sé þennan hrafn hér og þar um borgina. Í tíma og ótíma.

Mig langar að veiða þennan hrafn og hafa hann hjá mér alltaf. Hrafnar eru fallegustu fuglar sem ég veit um. Þegar ég bjó í Engihjalla varð ég oft vitni af Hrafnaþingum. Þeir söfnuðust saman í sandgryfjunum þar sem Smáralind stendur nú. Heilu breiðurnar af þeim.

Heillandi dýr.


| anna | 10:17 |
comments

Hrafnaþing voru algeng fyrir austan þar sem ég ólst upp. Hefurðu séð hvernig þeir fara með "þann veikasta" ? Það er fremur ógeðfelld sjón en þeir hæfustu lifa af.

Nr. 1 | posted by: Kristjana | 7.04.2004 | 12:24:05 | [+] |

Föstudagurinn langi - langi langi!!! Hrafninn þinn kemur vonandi með þér og hittir alla þá sem búa hér í minni sveit. Sannkallaður "móðir og börn dagur". Get ekki beðið og farin að spá í matseðilinn........ FIngurnir komnir í hörku þjálfunarprógram og málbeinið líka. Verð í góðu formi og hlakka til að fá þig HrafnaAnna

Nr. 2 | posted by: edda | 7.04.2004 | 15:28:12 | [+] |

Sko.. Edda.. ég á eftir heila færslu um þetta allt saman! happy

Nr. 3 | posted by: anna | 7.04.2004 | 16:21:32 | [+] |

Það að hrafn fylgi þér boðar gæfu. Óðinn hefur auga með þér og sér til þess að ekkert hendi þig og þína. Það voru fylgimenn krosslafurs sem komu illu orði á þessar merkisskepnur, því þótt þær geti verið fjárbændum búsifjum, halda þeir oft til haga glötuðum dýrgripum hafi maður vit á því að skoða í hreiðið þeirra.

Nr. 4 | posted by: Ingó | 7.04.2004 | 22:54:24 | [+] |

GETI VALDIÐ, EKKI GETI VERIÐ!

Nr. 5 | posted by: ingó | 7.04.2004 | 22:55:47 | [+] |

Gæfa segir þú? Mér hefur alltaf verið vel við Hrafna. Frá því ég var krakki hef ég dáðst að þessum fuglum. Ég er ekki að djóka, mig langaði að eiga einn. Hætti við þegar ég komst til vits og ára og áttaði mig á því að þetta er of stór fugl til að geyma í búri. Auk þess.. Hrafnar eiga bara alls ekkert að vera í búrum.

Ég vissi ekki að það fylgdi því gæfa þegar Hrafn ofsækir mann og gargar á mann. Er samt ekki að kvarta. Ég sakna hans þegar hann er hvergi nálægur.

Við blokkina sem ég bý í myndast oft mikið uppstreymi og stundum sé ég einn Hrafn leika sér þegar það er rok. Krákur eru flottar líka. Mig langaði líka í svoleiðis en hætti við af sömu ástæðum og ég hætti við hrafninn.

Ég bjó hátt uppi í Engihjalla og sá hrafnaþingin úr fjarlægð. Sem betur fer.. ég hefði ekki viljað sjá þá ganga frá þeim veiku. silent

Nr. 6 | posted by: anna | 7.04.2004 | 23:51:19 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web