www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hitt og þetta
Fimmtudagur, 08. apríl 2004

Í skólanum í gær var okkur kennt að reikna framlegð, framlegðarstig o.s.frv. Ég missti af síðasta tíma í skólanum því Doddi var veikur svo ég kveið hálfpartinn fyrir að koma inn í þennan hluta námsins því hann byrjaði einmitt í síðasta tíma sem ég missti úr. Ég hefði átt að naga neglurnar á mér aðeins meira því þegar ég fór að vinna þetta komst ég að því að mér finnst þetta gaman. Reyndar fátt í Brautargengi sem mér finnst ekki gaman. Ekkert sem mér dettur í hug þessa stundina. Þetta skýrði sig svo að öllu leyti sjálft þegar kennarinn sagði að þessir útreikningar væru eiginlega eins og að éta pappír. Mér hefur alltaf þótt pappír ljúffengur og það eru góðir dagar sem ég kemst heim með glósurnar mínar óétnar.

Ég var spurð að því, í einni pásunni, hvað ég er gömul. "Ég veit það ekki, ég er fædd '71". Hinar kunnu ekki að reikna það heldur og þar sem reiknivélarnar okkar voru inní stofu giskuðu þær á þrjátíu og tveggja, þriggja. Eitthvað svoleiðis.

Já.. og í hádeginu, rétt áður en ég fór í skólann hringdi síminn. Læknir af bráðavaktinni hringdi til að tékka á Dodda. "Hann er alveg orðin hress", sagði ég, "kominn á leikskólann". Christ.. var hún þá ekki að hringja í mig vegna þess að það var komin niðurstaða úr stroki sem var tekið úr hálsinum á honum.

Hann er með streptokokkasýkingu og þarf að fara á pensilín. Maður upplifir sig eitthvað svo vanhæfan í svona aðstæðum. Mér til varnar þá er hann búinn að vera hitalaus og eldhress. "Hvert viltu að ég sendi receptið?" spurði hún. "Það heitir... bíddu aðeins.. ég man ekki hvað apótekið heitir en ég sé það út um gluggann minn". Hljóp út í glugga.. "Lyf og heilsa"...

Ég var hrikalega dugleg í gær. Áður en ég fór með krakkana á Pítuna skilaði ég af mér líftryggingarpappírum sem ég er búin að trassa í smá tíma. Um leið og sú trygging kicks in.. þá fer ég að sofa róleg.

Amma Jóhanna kom með páskaegg fyrir krakkana áðan og svo kom afi úlfur líka með páskaegg. "Hvernig vissir þú að ég vildi fá línuskaupapúka?" Spurði Jóhanna yfir sig glöð "og hvernig vissir þú að ég vildi fá brettapúka?" spurði Doddi.

Afi úlfur veit svona hluti. Af því ég segi honum þá.

Á morgun er ég að fara í svona "blast from the past" partý til Eddu með krakkana. Við Edda ætlum að borða snakk með ost og lauk, saltstengur og drekka kók. Vorum reyndar búnar að tala um að hafa bjór en það hefur greinilega ekki skipt okkur miklu máli. Gleymdum báðar að fara í ríkið. Það er ágætt.

Á meðan krakkarnir leika sér ætlum við að leika okkur við að pússla og kjafta allan daginn. Alveg eins og við gerðum þegar við vorum krakkar/unglingar. Mig hlakkar svakalega til og við gátum ekki fundið betri dag en föstudaginn langa.. því okkur finnst svo gaman að hittast svona að það þarf að vera á extra löngum degi.

Á eftir er Jóhanna að fara í fermingu hjá vinkonu sinni og Tóti ætlar að fara með henni. Ég ætla að nota tækifærið og moka af skrifborðinu mínu á meðan. Taka til í allri íbúðinni. Neyðist reyndar til að gera það. Finn ekki lyklana af handjárnunum mínum.


| anna | 12:56 |
comments

Ekki það.. það kemur nú ýmislegt í ljós þegar ég tek til á skrifborðinu mínu. Ég mun gera nákvæma úttekt á þessu öllu saman. með handklæði á hausnum

Nr. 1 | posted by: anna | 8.04.2004 | 15:52:51 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web