www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Geimverur
Laugardagur, 24. apríl 2004

Ég setti upp könnun á forsíðunni um daginn sem var í raun bara lúmsk tilraun til að athuga hvað margar geimverur lesa síðuna mína. Komst að því að það eru 24.1 % lesenda minna geimverur.

Hvaða líkamshluti heillar þig oftast mest hjá gagnstæða kyninu?
Augu - 31.0%
Munnur - 3.4%
Hendur - 13.8%
Hár - 3.4%
Fætur - 0.0%
Rass - 6.9%
Mjaðmir - 0.0%
Magi - 3.4%
Nef - 0.0%
Brjóst - 10.3%
Tennur - 3.4%
Neglur - 0.0%
Ég er geimvera og heillast ekki af mannfólki - 24.1%

Það er hinsvegar mín skoðun að allir sem búa í alheiminum séu geimverur.


| anna | 17:18 |
comments

Ég held reyndar að þessi færsla um geimverur sé lúmsk tilraun til að breiða yfir aðra lúmska tilraun til að komast að því hvaða líkamshluti heillaði mest til þess að þú gætir valið rétta mynd af þér á síðuna þína.

Augun fengu mest fylgi og þess vegna valdir þú mynd - af augunum.

Ég valdi reyndar hendur en svo allrar nákvæmni sé gætt þá meinti ég fingur en sá kostur var ekki mögulegur. Valdi því hendur. Reyndar þegar ég las listann þá held ég að tennur væru kostur tvö hjá mér.

Nr. 1 | posted by: igor | 24.04.2004 | 17:40:12 | [+] |

Möguleikinn að vera geimvera sem heillast af mannfólki var víst ekki gefinn, þannig að könnunin gefur væntanlega ekki alveg rétta mynd af því hversu margar geimverur skoða bloggið þitt...

Nr. 2 | posted by: Kristó | 24.04.2004 | 18:10:10 | [+] |

Ég valdi hendur.

Nr. 3 | posted by: anna | 24.04.2004 | 18:20:00 | [+] |

Kristó, hvað valdir þú?

Nr. 4 | posted by: anna | 24.04.2004 | 18:20:20 | [+] |

Huumm! Það er eitthvað geimverulegt við þessa nýju mynd. Hversu góð ertu í photoshop? doubt

Nr. 5 | posted by: edda | 25.04.2004 | 12:59:30 | [+] |

WAHAHAHAHAHAHA

Þú hefur ekki séð mig eftir að ég plokkaði mig síðast wink

Nr. 6 | posted by: anna | 25.04.2004 | 13:01:31 | [+] |

Anna, ég valdi rass... angel

Nr. 7 | posted by: Kristó | 25.04.2004 | 13:44:02 | [+] |

LOL

Nr. 8 | posted by: anna | 25.04.2004 | 13:47:00 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web