Föstudagur, 02. apríl 2004
Ég hef komist að því að ég á ógrynnin öll af aðdáendum. Í morgun fór ég að taka bensín á bílinn áður en ég fór í vinnuna. Dælugæinn kom út og sagði: "var það eitthvað fleira?", áttaði sig, roðnaði pínu og sagði: "hvað viltu fá fyrir mikið?". Ég brosti mínu blíðasta og svaraði: "fyllann". Þetta hefur reyndar komið fyrir mig áður á bensínstöð en það var eiginlega ekki að marka. Þá var ég búin að taka fram stórskotaliðið. Gervi leður kjólinn og glimmer í hárið. Kom tómhent að afgreiðsluborðinu og afgreiðslumaðurinn sagði: "var það eitthvað fleira?", roðnaði og sagði: "já þú kannski byrjar á að segja mér hvað þú vilt áður en ég spyr hvað þú vilt fleira".
"Heitt kynlíf á aftursætinu í bílnum mínum".
Nei. Mig vantaði tyggjó. Ég sé eftir að hafa ekki sagt hitt. Hefði verið gaman að sjá viðbrögðin. En maður segir ekki svona nema maður sé tilbúin að fylgja því eftir og ég var tímabundin.
Í dag kom svo ungur maður til mín í vinnuna. Hann byrjaði á að spyrja mig: "var það eitthvað fleira?".. nei hann sagði það ekki. Hann sagði hinsvegar: "Ert þú systir hennar Júlíu?".
Magnaður andskoti. Hann þekkir Júlíu. Ég gaf honum auðvitað upp slóðina á pusspuss hið snarasta og sagðist myndi skila kveðju frá honum. Nema hvað. Fer ég svo á pusspuss og kemst að því að hann var að FLÖRTA við mig! Ég er annars hugar. Vanalega pikka ég up on those things. Nema að það einskorðist við bensínstöðvar?
Ég hef prufað að blogga þegar fullt af hlutum voru að gerast sem ég ég vildi ekki pósta á netið. Þá þarf maður að finna eitthvað upp til að segja frá. Hence.. the disclaimer: "Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes".
Það er hinsvegar alveg jafn erfitt að blogga þegar það er ekkert að gerast. Þá grípur maður til sömu örþrifaráðanna. Fór í dag að hitta mann í Þjóðarbókhlöðunni. Drakk með honum kókó á meðan hann fræddi mig um alla varasömu karakterana sem halda til í Þjóðarbókhlöðunni. T.d. Hannes Hólmstein og Njörð húsvörð sem er víst skæður með moppuna.
Þegar kakóið var búið var ég orðin paranoid. Var þetta byssa í töskunni hjá gráhærðu kellingunni með laptoppinn? Var þetta sprengja í skjalatöskunni við borðið lengst til hægri? Myndi ég sleppa lifandi? Myndi ég sleppa ósködduð? Ósnert? Heil á sál og geði?
Nei. Ég er langt frá því að vera í lagi.
Sótti um í leynilögreglu Bíbí og fékk inngöngu í trial hóp. 60 konur á aldrinum 25 - 35. Aðeins fimm okkar munu "komast af" og verða súper bíbí njósnarar: "Birnurnar".
Held að ég hafi nú bara komist að vegna þess að ég er í underwire bra í dag.
Þegar orð eru annars vegar eru möguleikarnir endalausir...