www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég upplifi svo mikla höfnun..
Föstudagur, 23. apríl 2004

Ég er gjörsamlega að missa þolinmæðina á henni systur minni. Hún hringir í mig í tíma og ótíma og skellir á mig. Þetta er svona "secret code" sem þýðir: "ég á ekki inneign, hringdu í mig".

Nema ég upplifi svo mikla höfnun!

Ég veit ekki hvað ég á að gera í þessu...


| anna | 23:21 |
comments

Þessi höfnun er ekkert miðað við það sem ég uplifði í flugvélinni á leiðinni heim um daginn. Þetta byrjaði eins og venjuleg flugferð. Ég keypti mér bunka af blöðum til að lesa og borgaði yfirvigtina glaður.

Hófst svo lesturinn. Á miðja vegu milli Færeyja og Íslands gerðist það. Ég tók upp Financial Times og þegar ég opna blaðið blasir fyrirsögnin við. Mér rann kalt vatn milli skins og hörunds. Kaldur sviti spratt fram úr enninu á mér.

Kvenmýs eignast afkvæmi án nokkurs atbeina karlmúsa (mjög lauslega þýtt úr ensku)

Mig rak í rogastans. I´ts over, hugsaði ég. Ég las lengra. Japanskir vísindamenn hafa fundið leið til þess að kvenmús geti eignast afkvæmi án þess að karlmúsin komi nokkuð nærri. Eina sem þeir notuðu var egg kvenmúsa og einhver genatækni sem gerir karlinn óþarfan. Useless.

Kvarnirnar fóru af stað. Dolly kom upp í hugann. Nei, ekki gömul kærasta heldur ærin Dolly. Þið munið. Hún var klónuð og aðeins nokkrum árum seinna voru vísindamenn byrjaðir að huga að klónun á mönnum. Það er það sem ég óttast. Að þessi æxlunartækni sem reynd var á músunum verði færð yfir til manna eftir nokkur ár. Mun kvenkynið hafna karlkyninu?

Hverjir eru möguleikarnir í stöðunni?

- leggjast með fæturna upp í loft og bíða örlaga sinna
- fara í kynskipti aðgerð

Nr. 1 | posted by: igor | 24.04.2004 | 8:01:02 | [+] |

Láttekku svona Igor. Þetta er ekkert nýtt. Það eru konur sem fá sér frostpinna í dag. Hver er munurinn?

Vissulega verður þetta þannig.. að maður tekur bara upp katalóg og velur sér kyn, styrkleika, útlit.. og þessu verður komið fyrir í tilraunastofu og þar vex fóstrið og dafnar. Þeir finna upp eitthvað til að speed up the process. Ég giska á að maður verði komin með barnið í hendurnar að mánuði liðnum.

Þrátt fyrir þetta sé ég ekki fram á að sportreiðar leggist niður. Ever.

Nr. 2 | posted by: anna | 24.04.2004 | 10:12:47 | [+] |

Bíða sömu örlög karlkyns?

Bíddu.. ég hélt að það væri löngu orðið þannig.. toungue

Nr. 3 | posted by: anna | 24.04.2004 | 11:02:32 | [+] |

Alveg vissi ég að þú myndir svara þessu svona. Maður á ekki að leika sér að eldinum.

Nr. 4 | posted by: igor | 24.04.2004 | 11:07:40 | [+] |

Æi.. ég er svo vond. Sorry. shy

En sko.. í mínum huga lá þetta bara svo beint fyrir.

Það er vitað að líkami konunnar er miklu fullkomnari en líkami karlmannsins. Konur eru með færri genagalla, færri sjúkdómar erfast í kvenlegg. Það er bara eðlilegt að hætta að nota gallað dót. Ég spái því að hætt verði að nota karlmenn til undaneldis innan 100 ára.

Vandamálið er hinsvegar að þá fyrst mun mannkynið vera í vondum málum. Við verðum með "ofur" race í anda Hitlers og svo hina sem hafa ekki efni á að eignast hin fullkomna erfingja. Stéttaskiptingin verður svakaleg og ég yrði ekki hissa þó það yrðu framleidd lítt hugsandi mennsk vinnudýr til að halda efnahagnum gangandi.

Ég yrði líka ekki hissa þótt þau yrðu kynlaus svo þau gætu ekki fjölgað sér.

Og spáðu.. ég er bjartsýn!

Nr. 5 | posted by: anna | 24.04.2004 | 11:10:52 | [+] |

Ég er líka bjartsýnn að eðlisfari. Dómsdagsspár verða aldrei að veruleika. Dómsdagsspár eru bara fyrir svartsýna. Maðurinn er þannig að hann þarf vandamál til að kljást við. Erfiðleikar eru forsenda frumkvæðis. Ef allt er í góðu þá er engin hvati til að breyta. Bæta.

Það var uppúr 1960 sem bókin Endimörk vaxtarins var skrifuð. Þar skrifuðu margir spekingar og framreiknuðu þeir ýmsa hluti. Olían átti að klárast um 1990. Mannfjöldinn orðinn óviðráðanlegur um 2000. Enginn matur til nokkrum árum seinna.

Auðvitað varð ekkert af þessu að veruleika. En bókin þjónaði sínum tilgangi. Því þá voru komin á blað vandamál sem þurfti að leysa. Nýir orkugjafar voru fundnir upp. Meiri olíu dælt upp. Framfarir í matvælatækni. Fleiri og fleiri aðferðir fundnar upp til að takmarka barneignir.

Við munum finna lausn á þessu með karlkynið. Vittu til.

Nr. 6 | posted by: igor | 24.04.2004 | 11:21:39 | [+] |

Sko til...Ef að það verður farið að rækta "fólk" innan 100 ára.... verður þá ekki örugglega búið að finna út eilífðar og yngingarmeðal líka? Hvað um það, mér sýnist á öllu að þú sért að lýsa framtíðinni eins og hann A. Huxley gerði sautján hundruð og súrkál í bókinni "Veröld ný og betri"..... og heldurðu að það hafi ekki nokkrar sálir fellt fögur tár yfir þeirri sögu evil , eða kannski ýtti hún bara undir hugmyndir? Well, we'll never know weepy

Nr. 7 | posted by: Dolly | 26.04.2004 | 17:43:32 | [+] |

Ég er svo illa lesin Dolly.. allt sem mér dettur í hug sjálfsprottið...

MÚHOHOHOHO

Nr. 8 | posted by: anna | 26.04.2004 | 17:46:22 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web