Nr. 1 | posted by: igor |
30.04.2004 | 0:06:49 | [+] |
Já auðvitað. Hitt er augljóst. Eða er það ekki????
Nr. 2 | posted by: anna |
30.04.2004 | 0:08:15 | [+] |
Ég verð eiginlega að taka það sérstaklega fram.. að þetta er heilagur sannleikur. Ekki einu sinni stílfærður.
Edda.. hvernig gengur í þinni tilraun? Er þetta ekki að svín virka?
Nr. 3 | posted by: anna |
30.04.2004 | 0:12:25 | [+] |
Án gríns. Þetta er magnaður andskoti. Ég þarf að fara að mæta í leikfimi ef þetta heldur svona áfram. Glatað að vera 55 kg í hlutföllunum vatn og fita!
Nr. 4 | posted by: anna |
30.04.2004 | 0:13:56 | [+] |
Það er alveg ljóst að það má misskilja allt. Ég er snillingur í að misskilja. Einhverstaðar skrifaði ég á bloggið mitt: "mér misheyrist svo margt og það sem ég heyri rétt.. það misskil ég".
Nr. 5 | posted by: anna |
30.04.2004 | 0:17:25 | [+] |
Í dag fór Organistinn undir 75 kg í fyrsta skipti í marga mánuði. Stefni á 72 kg.
Anna þú þarft að átta þig á að þú ert 60% vatn. Ef þú fórst niður í 59 kg í dag án þess að brjóstin minnkuðu þá bendir það til þess að þú hafir verið að tapa vatni en ekki fitu.
Ertu á einhverjum high protein/fat diet? Þeir eru sérlega þekktir fyrir þetta fyrirbæri.
Igor, og aðrir kommenterar hér hjá Önnu, væri hægt að fá uppgefið hvað allir eru þungir?
Já.. svo borgar sig kannski líka að minnast á eitt. Þórlaug sagði mér að fólk sem er að skilja léttist oft heil ósköp...
Nr. 10 | posted by: anna |
30.04.2004 | 8:17:54 | [+] |
Þyngd igors flokkast sem ríkisleyndarmál. Óheimilt er að kynna sér nokkur gögn um þetta mál fyrr en 30 árum eftir andlát eða þegar kjörþyngd hefur verið náð.
igor getur þó upplýst að hann hefur aðeins 55 daga til þess að ná sér niður í kjörþyngd. Framundan er gönguferð.
Nr. 11 | posted by: igor |
30.04.2004 | 8:30:14 | [+] |
Ég er 95 kílógrömm, 179 1/2 cm, skóstærð 42... EN ef ég hefði verið spurð sömu spurningar fyrir 2-3 mánuðum hefði ég sagt 83. Og ekki verið a ljúga! Shit, mig vantar kraftaverk í formi barnavagnsgöngutúra
En ég verð að taka fram að ég er ekki nema 1.65 á hæð. Fer stundum upp í 1.72 í stígvélum.. hehehe
Hef farið mest upp í 79 kg um ævina þegar ég var ófrísk af fyrsta barninu mínu. Fór úr 50 í 79 á níu mánuðum. Það var bilun.
Sem betur fer var það mér til happs að fæðingarlæknirinn minn sagði við *mannin minn*, ekki mig, að hann skyldi ekki hafa neinar áhyggjur.. barnið myndi hreinlega éta þetta allt af mér ef það væri haft á brjósti. Eftirá að hyggja var ágætt að hann skyldi segja þetta við blaðamanninn en ekki mig. Ég hefði aldrei trúað honum ef hann hefði sagt mér þetta.
Ég hafði Jóhönnu á brjósti í 6 mánuði og endaði í 55 kg. Mæli samt ekki með þessu, að fitna svona hratt og grennast aftur hratt.
Igor. ætlar þú á svona kolvetna svelti kúr eins og ég held að Organistinn sé að tala um? Ég lifi nánast á kolvetnum svo ef ég ætti að sleppa þeim.. fyrir utan sælgæti og gos.. þá myndi ég hreinlega drepast úr hungri. Ég get ekki farið á svona fitu kúr því ég er gölluð. Vantar í mig gallblöðruna og ég get ekki unnið nógu vel úr fitu. Fæ bara í magann. Ef ég færi á Atkins kúrinn yrði ég að kaupa mér ferðaklósett.
Nr. 14 | posted by: anna |
30.04.2004 | 9:32:10 | [+] |
yfirmaðurinn minn fór á atkins, ég sagði honum að það væri slæmt fyrir nýrun en hann trúði mér ekki fyrr en hann endaði með nýrnasteina á spítala. ég er 1,76 á hæð og var alltaf 65, en eftir fæðingu barns nr.2 fyrir 1 og 1/2 ári síðan hef ég ekki komist niður úr 72 kg. það er svosem hætt að trufla mig. ég er innan við kjörþyngd og manninum mínum finnst ég óskaplega djúsí
Nr. 15 | posted by: maja |
30.04.2004 | 9:40:54 | [+] |
Já nákvæmlega. Það er ekkert gaman ef maður er ekki soldið djúsí!
Nr. 16 | posted by: anna |
30.04.2004 | 10:11:11 | [+] |
Sko.. þetta með bananann.. það er alveg satt. En í kvöldmatinn fékk ég mér djúsí kjúkling með frönskum og hrísgrjónum og sósu. Ég er alls ekki hætt að borða. Var bara soldið upptekin í hádeginu við annað.
Ég held að þetta sé að spila saman. [the power of your subconcious mind] og allt hitt.
Ég hef aldrei notað herbalife. Mér fannst rosalega ótrúverðugt þegar "foringi Herbalife" datt niður dauður ofaní morgun pillurnar. Ég myndi frekar chanta. Ég veit um aðra sem er að prófa svona chant, hún er hamingjusamlega gift en er samt að missa kíló, svo það er ekkert víst að skilnaður sé rétta lausnin.
Taktu núverandi þyngd, mínusaðu 15 frá og sú þyngd sem kemur út úr því verður þitt chant.
Það versta sem gerist er ekki neitt. Sem ég held að gerist ekki reyndar...
Nr. 17 | posted by: anna |
30.04.2004 | 12:03:38 | [+] |
fólk verður svo hrikalega andfúlt af því að nota herbalife. það hlýtur að segja okkur eitthvað...
annars er ég komin með megrunar-ónæmi eftir að hafa horft á samstarfsfólkið fara á alla mögulega kúra, kolvetna, kjöt, fitu, hitaeininga bla bla... og ég get ekki betur séð en að allir séu um það bil í svipuðum holdum og þegar ég byrjaði fyrir 2 árum.
annars er ég á kiwi-kúrnum. borða allt nema kiwi.....
Nr. 18 | posted by: maja |
30.04.2004 | 12:27:40 | [+] |
Þessi var góður. Ég er líka á kiwi kúrnum og gengur svona svakalega vel!
Nei ég er í raun á móti kúrum og hef satt best að segja aldrei á ævinni farið í megrun. Ég hef hinsvegar notað aðra aðferð sem byggir í raun á þessu [TPOYSM]. Ég hef sagt frá þessu áður.. ég á buxur sem eru of stórar. Þegar ég er löt að þvo eru þær yfirleitt svona "neyðar" buxur svo þær gegna í raun tvöföldu hlutverki. Annarsvegar eru þær alltaf við það að detta niðrum mig svo ég fer að þvo.. hinsvegar.. ef þær detta ekki niðrum mig.. þá er ég meðvituð um að ég sé að þyngjast. Það sem gerist þá er að ég fer að borða minna. Ekki svelta mig, ekki æla eða neitt rugl. Ég bara borða minni skammta OG.. hehehe.. hætti að borða snakk, nammi og kók í smá tíma. Ég hef aldrei haldið það út.. en ég stefni á að halda það út í þetta sinn. Já.. og ég borða ekkert eftir klukkna níu svona að staðaldri.
Svona einfalt er þetta. Ég kalla þetta ekki kúr. Finnst þér þetta vera kúr?
Ég er hinsvegar svona emotional eater.. nema ég borða bara þannig þegar mér leiðist. Eða.. ekki beint leiðist.. þegar ég þarf á mannlegum samskiptum að halda og fæ engin. Og þá er ég ekki að tala um neitt dirty. (borgar sig að taka það fram, þá sjaldan sem maður er ekki að tala um neitt dirty)
Nr. 19 | posted by: anna |
30.04.2004 | 12:37:50 | [+] |
Já.. best að taka fram að ég er oft löt að þvo svo þetta er frekar reglulegt tjékk hjá mér...
Nr. 20 | posted by: anna |
30.04.2004 | 12:40:16 | [+] |
þetta er ekki kúr, bara eiginlega svona viðhald. ég reyni að borða ekki nammi og drekka ekki kók á virkum dögum, svo um helgar á ég til að detta íða á sykurfylleríum. það varð eiginlega mín leið til að halda uppá helgarnar eftir að ég varð 2ja barna móðir og kemst/nenni ekki út á lífið, en ég vil samt ekki sleppa því að halda helgarnar hátíðlegar.
svo er prinsipp mál hjá mér að fara ekki í líkamsræktarstöðvar því mér finnst þær leiðinlegar, en í staðin labba ég bæinn þveran og endilangan, hjóla svolítið og skrepp með liðið í sund þegar enginn er með eyrnabólgu eða kvef. ég held að þetta sé bara spurning um að halda jafnvægi. óþarfi að leyfa sér að blása út, en líka óþarfi að lifa óánægður yfir því að vera ekki eins og cindy crawford. (maður er nottla létt heilaþveginn af öllu "fallega" fólkinu sem er reyndar oft bölvaðir vitleysingar...)
Nr. 21 | posted by: maja |
30.04.2004 | 12:57:07 | [+] |
Alveg er ég hjartanlega sammála þér. Maður þarf að halda sér við. Ég er samt búin að finna lausn á þessu vandamáli með fallega fólkið. Ég þarf bara að finna einhvern sem er mjööööög nærsýnn. Tek svo alltaf af honum gleraugun áður en við háttum upp í rúm
Með því móti og með svona built in "difuse glow" lít ég alltaf vel út
MÚHOHOHOHOHO
Nr. 22 | posted by: anna |
30.04.2004 | 13:15:15 | [+] |
hvað er þetta með að kyrja? vinsamlegast kennið mér, því þá tekst mér kannski að komast aftur í buxurnar sem sitja aftast í skápnum því ég tími ekki að henda þeim, en passa samt ekki í þær lengur með góðri samvisku. (lít út eins og vatnsblaðra í sellófani)
og í sambandi við "fallega" fólkið Anna, þá held ég að stór hluti af því að vera sætur og hafa "appíl" felist í því að vera sannfærður um það sjálfur að maður sé bara assgoti fín. eina vandamálið er að fólk er alltaf lang gagnrýnast á sjálft sig. (það hef ég séð mjög vel eftir að maðurinn minn gerðist ljósmyndari og öllum finnast allir sætir á myndum nema þeir sjálfir)
Nr. 23 | posted by: maja |
30.04.2004 | 13:42:15 | [+] |
Maja, hér eru leiðbeiningar fyrir [The Power of your subconcious mind].
Ég hélt að ég myndi deyja Edda þegar ég las kommentið frá þér. Þú ert alveg svakalega fyndin.
Þakka ykkur öllum sem kommentið. Það er partly ykkur að þakka að ég þarf ekkert að emotional éta neitt. Ég á í svo miklum mannlegum samskiptum á síðunni minni.
Já Maja. Ég er alltaf að segja mér að ég sé bjútifúl. Stundum hlusta ég á mig og stundum ekki.
Ég stefni eiginlega á að geta feisað mig að morgni og hvíslað með hálf lukt augun við spegilmyndina: "þetta er ekkert svo hræðilegt". tíhíhí
Nr. 24 | posted by: anna |
30.04.2004 | 13:57:04 | [+] |
Ok, ég byrja þá strax í kvöld "Ég er 55 kíló..." 3x hvert kvöld og þá verð ég orðin hrikalega flott eftir aðeins nokkrar vikur.
Hey, sko ef ég fæ kallinn til að taka þátt í þessu og hann chanti þá "Þú ert 55 kíló" um leið og ég geri mitt chant, ætli ég léttist þá tvöfalt hraðar???
Nei ef satt reynist sem Maja segjir að fólk verði svona andfúlt á Herbinu þá er það ekki inni í myndinni, enda ekki séns að ég hafi viljastyrkinn til að éta duft í heilan dag, þá einmitt færi ég bara beint á KFC um kvöldið "Ég ætla að fá tvö fjölskyldutilboð og extra mikið af kokteilsósu... þú kannski hellir henni bara yfir kjúllann fyrir mig. Ha, nei nei, bara disk fyrir einn."
Neibb, nú er ég strax farin í það að þamba vatn af áfergju og chanta.
Og svona í lokin er ég bara hjartanlega sammála Maju, ég er ofsalega léleg í þessu blogg-surfi en ég hrasaði inná þessa síðu þína fyrir tilviljun og finnst hún bara algert brill, þú ert penni dauðans og það er virkilega gaman að kommenta hjá þér og fá alltaf svör, það er svona eins og maður sé lentur inní miðju spjalli í hvert skipti.
Það er frábært að heyra að þið skemmtið ykkur vel hér. Lord knows I do!
Velkomnar báðar tvær, virkilega gaman að hafa ykkur!
ps. ég held að þú ættir ekkert að segja kallinum frá þessu.
Þetta er miklu skemmtilegra þegar þetta er soldið duló
Nr. 26 | posted by: anna |
30.04.2004 | 16:36:59 | [+] |
Vatnsblaðra í sellófani? Ég er bara að reyna að draga upp mynd af þessu í huganum
En elskurnar mínar, munið bara hvað hún Vala "okkar" Flosadóttir kyrjaði áður en hún stökk á bronsið. Það var án efa "The power of the subconcious mind".
Maja hér koma smá leiðbeiningar frá 53 daga eldri og reyndari konu en Önnu:
Mantra kvöldsins:
Ég er 57 kg. með stinn brjóst og þrýstinn rass
Ég er 57 kg. með stinn brjóst og þrýstinn rass (þulið þar til svefntöflurnar fara að virka)
Mantra dagsins: (kyrjuð fyrir framan spegil sem þú sérð þig í fullri stærð)
Ég er hoj og slank, hamingjusöm, gullfalleg, fullkomin móðir, dásamleg eiginkona, elskhugi dauðans (þ.e. sú allra besta sem finnst (fyrir þá sem ekki skilja)), brilljant, klár og smart. Allt sellófón í small og extra small nýtur sín fullkomlega.