www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Að renna á rassinn
Mánudagur, 19. apríl 2004

Ég renn stundum á rassinn. Hef ekki gert það nýlega og er standing my ground firmly þessa dagana.. en ég hef ekki alltaf verið svona staðföst.

Já og öll þessi setning hér að ofan er haugalygi. Annars væri ég ekki að þamba kók og reykja líkt og í akkorði. Bygons.

Ég nenni ekki að velta mér upp úr því sem skiptir ekki máli. Djöfull LÝG ÉG! Ég er alltaf að velta mér upp úr því sem skiptir ekki máli.

[líður nú drykklöng stund og anna er með hendurnar í startholunum á lyklaborðinu]

Ég finn ekkert til að segja því ég lýg svo mikið þegar ég blogga. Er sífellt að leiðrétta einhverja helvítis vitleysu sem sprettur fram úr fingrunum á mér.

Dyunfum rt ´rh mrð ginhutns ´s tönhum dysð ´s lyklsnotðinu. <þ´s krmut dbons dktíyið úy. Hæyi noysð þryys drm fulnpsk, hlyu jinup dært brk rubgbrtyæunsbb rg ærh .stg sp drhhs gtæs rubgbrthu drn ærhg buk rjju sp bijjyt nsouyt biyp.

Merkilegt. Ég hef í alvöru reynt að skrifa svona bull. Fattaði ekki að það er nóg að staðsetja fingurna bara rangt á lyklaborðinu. Svona er maður alltaf að gera nýjar uppgvötvanir í lífinu.

Mig langar til Dubai.

Já. Ég vissi að það gerðist eitthvað í dag sem ég ætlaði að muna eftir að blogga um. Hlaut að vera eitthvað markvert á mánudegi. Það hringdi nefnilega í mig maður í dag. Ég þekki þennan mann. Lítið reyndar, en nóg. Einhverra hluta vegna sagði hann mér að honum fyndist konur á aldrinum 35 til fertugt svo sexý. Hann er sem sagt orðin svaag fyrir eldri konum. Merkilegt. Gott að vita að æskudýrkun er ekki allstaðar. Come to think of it. Kannski er ég biluð.. en mér finnst konur á aldrinum 35 til fertugt vera ungar, svo kannski er þetta æskudýrkun eftir allt saman. Hvað veit ég..

Annars er ég ennþá við sama heygarðshornið. Með grátt í vöngum er alltaf jafn flott. Svo fíla ég hrukkur líka. Allt innan hæfilegra marka auðvitað. Ef ég mætti velja einn mann, lifandi eða dauðann, til að hitta yfir kvöldverði (og þá gef ég mér að hann myndi rísa frá dauðum fyrir mig. Halldór.. don't) þá held ég að ég myndi velja.... ekki Woody Allen. Hann er of taugaveiklaður. Ekki Jude Law. Ég held að hann sé soldið vitlaus. Ekki G... VÁ! Ég veit hvern ég myndi velja. Lygarann og sjarminn Kevin Spacey. Oh.. af hverju eru þeir alltaf hommar? Why? Why? Why?

Ef ég mætti velja tvo þá myndi ég velja Kevin Spacey og.. nei.

Enn ein lygin. Ég myndi velja Sean Connery: the early years. Ég þyrfti ekki að fá fleiri. Maðurinn var divine. Ég átti einu sinni alveg hrikalega flotta mynd af honum áður en ég límdi hana á stofuborðið mitt ásamt fullt af öðrum flottum mönnum. Henti borðinu. Sé eftir að hafa ekki skorið Connery út fyrst.

Djöfull röfla ég svakalega. Jæja. Best að fara í bað og æfi mig í að raka á mér leggina.. but in a sexy way.

WAHAHAHAHAHAHA.. Svei mér þá.. ég er að hugsa um að gera það bara! Mér leiðist ekki á meðan...

Já.. Þór. Fokk off. Allir bloggarar dauðir og hinir í dauðateygjunum? Speak for yourself.

Iss..


| anna | 23:56 |
comments

Mærin frá Marokko.

Brenda and Eddie were still going steady in the summer of ´75. Söng Billy Joel á plötunni The Stranger frá 1977. Þetta lag kom upp í hugann þegar ég var að lesa bloggið hjá þér undanfarna daga. Og þá mundi ég eftir því. Þetta var sumarið 1978. Það var á Costa Del Sol. Hitabylgja. Fjörtíuogeingráða í forsælu. Ég hafði séð undanfarna daga í hótelgarðinum einhverja fallegustu stelpu sem til væri. Hún var frá Marokko. Foreldrar hennar sennilega nokkuð efnaðir því þau áttu íbúð á hótelinu. Ég velti því stundum fyrir mér hvar hún sé núna. Kannski er hún flóttamaður. Kannski er býr hún í höll í Marokko og var gefin ung prinsi. Hver veit?
Þannig var mál með vexti að maður var auðvitað allt of feiminn að nálgast svona veru. Og því lét maður það eiga sig. Svo var það í hitabylgjunni að mér datt í hug að fara að spila borðtennis við annan strák í garðinum. Þegar keppnin stendur sem hæst ber mærina frá Marokko að garði. Hún horfir á okkur spila. Ég er ekki frá því að mér hafi fipast aðeins en náði að halda ró minni. Að leik loknum leggjum við spilin..eh. spaðana á borðið. Mærin nálgast okkur. Gefur sig á tal og segir "ég hef aldrei séð svona rosalega hvíta stráka áður". Svo var hún farin. Blessbúið.

Blogglygi. Ég hef ávallt haldið mig við kjörorð Önnu: Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.

Nr. 1 | posted by: igor | 20.04.2004 | 7:11:38 | [+] |

hmmmm, viltu fá dauða með þér út að borða ?

....mér fannst endilega að þú vildir mann með stiffy ekki mann sem væri stiffy.....

Nr. 2 | posted by: dorinn | 20.04.2004 | 10:31:18 | [+] |

Já alveg rétt kjörorðin mín 11. happy

Ég er eins og fimm ára krakki á blogginu mínu þessa dagana. Að athuga hversu langt ég get gengið. Held ég verði að hætta því mig grunar að það komi engin til með að stoppa mig.

Annars var ég spurð í morgun hvernig það kom til að Igor Brezinski fór að lesa anna.is. Varpa spurningunni bara áfram og yfir á þig Igor.. Verð að viðurkenna að ég forvitin að vita það og þar sem ég er ekki búin að græja síðuna mína þannig að hægt sé að leita í kommentunum finn ég ekki fyrsta kommentið þitt..

Nr. 3 | posted by: anna | 20.04.2004 | 10:49:37 | [+] |

Halldór. Ég er perri.. en ég er ekki náriðill. Og ég sagði don't.

Ágætt að vita að reverse psychology virkar á þig snuggums! wink

Nr. 4 | posted by: anna | 20.04.2004 | 10:53:32 | [+] |

jess, loksins einhver sem er ekki að hætta að skrifa. þetta var farið að líta hálf dapurlega út.... lengi lifi bloggduglegir

Nr. 5 | posted by: maja | 20.04.2004 | 14:39:55 | [+] |

Þú spyrð hvernig það kom til að ég fór að lesa anna.is. Þetta gerðist nú bara svona óvart. En nákvæmlega var það svona.

Linkinn á síðuna þína fann ég á badabing.is. Slóðina á badabing.is fann ég í tengslum við einhverjar umræður sem ég var að lesa á vefnum vorið 2003.

Annars gerðist þetta svona:

17. maí 2003: Fyrsti lesturinn
01. júní 2003: Áhrifamikil færsla
12. júní 2003: Fyrstu skrifin
16. júní 2003: Fyrsta deilan
17. júní 2003: Fyrsta sjúkdómsgreiningin.
27. júní 2003: Umræðan eykst
28. júní 2003: Tímavélin
30. júní 2003: Alvöru umræður

Ekki aftur snúið.

Nr. 6 | posted by: igor | 20.04.2004 | 22:33:58 | [+] |

Þetta var skemmtilegt Igor. Takk fyrir upprifjunina! smile

Nr. 7 | posted by: anna | 20.04.2004 | 23:31:46 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web