www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
100 börn
Þriðjudagur, 13. apríl 2004

Ég átti áhugavert samtal við Dodda í gærkvöldi. Fyrr um daginn hafði Júlía verið að kanna hvort hann væri ennþá skotinn í Eydísi á leikskólanum og hann sagðist vera það. Þá spurði Júlía hvort hann ætlaði að giftast henni, já hann hélt það nú. Næst spurði Júlía hvort hann ætlaði að eignast börn með henni.. já.. eitt hundrað stykki.

Ég hugsaði nú bara: aumingja Eydís.

Um kvöldið spurði ég Dodda af hverju hann ætlaði að eignast 100 börn. "Ég er hættur við", sagði hann, "nú ætla ég bara að eiga tvö. Einn strák og eina stelpu." "Já", sagði ég, "hundrað börn eru líka soldið mikið". "Nauts mamma!" sagði Doddi. "Hundrað börn eru ekkert soldið mikið, það er rosalega, rosalega mikið! Hefurðu ekki séð Dalmatíu hundana? Þeir eru hundrað og einn og þeir eru rosalega margir. Svo yrði hún Eydís algjör aumingi af öllum þessum barneignum".

Ég held að það sé ekkert til sem er betra í heiminum en þankagangur barna.

Held ég hafi fundið hvata fyrir hann til að verða eitthvað annað en ekki neitt. "Doddi. Ef þú ætlar að gifta þig og eignast börn.. hvernig ætlar þú að eignast peninga til að gefa þeim að borða ef þú verður ekki neitt?". "Ég veit það ekki. Kannski geri ég myndir", sagði hann hugsi. "Ef þú ætlar að mála myndir þá heitir að að vera málari, þá ætlar þú að vera málari þegar þú ert orðinn stór", sagði ég. "Oh mamma", andvarpaði hann, "ég ætla ekkert að verða málari, ég ætla ekkert að mála, ég ætla að teikna!". "Það heitir að vera teiknari", sagði ég grasping at straws. "Þá ætlar þú að verða teiknari þegar þú verður stór". "En mamma, ég veit ekkert hvar vinnan er og ég rata ekki þangað svo ég get ekki verið teiknari, veist þú kannski hvar vinnan er?". (brace yourself, hvít lygi comming right up!) "Já, ég veit það og hafðu engar áhyggjur. Ég skal sýna þér það þegar þú verður orðin stór, en svo kannski skiptir þú um skoðun og verður eitthvað annað en teiknari". "Nauts!", sagði hann stórhneykslaður, "ég rata ekkert á neina marga staði!"

Ég endaði á að segja honum að það væri langt þangað til hann þyrfti að rata í vinnuna og hann yrði hissa á hversu auðvelt það yrði þegar hann verður orðin stærri. Benti honum á að þegar hann fæddist kunni hann ekki að labba og ekki að tala, en nú kann hann alveg að tala og getur meira að segja hoppað á einum fæti og klifrað upp á litlu húsin í leikskólanum og stokkið niður. "Nauts mamma, oh.. FYRST lærði ég að labba og SVO lærði ég að tala.. oh.."

Þessar mömmur....


| anna | 14:09 |
comments

Algjört yndi laughing

Nr. 1 | posted by: Þórlaug | 14.04.2004 | 11:01:55 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web