www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
What a feeling
Þriðjudagur, 16. mars 2004

Mér finnst Flashdance auglýsingaherferðin algjör snilld. Fær mig til að langa að horfa á Flashdance jafnvel þótt ég muni ennþá eftir því að þegar ég horfði á hana síðast (ca 7 ár) fannst mér myndin vera fullkomið crap. En hlutirnir breytast oft þegar maður fer í leikfimi.

Eftir að ég byrjaði í leikfimi hef ég áttað mig á óhugnarlegri staðreynd. Lærður maður sagði mér að 30% fituhlutfall af 64 kg er ca 20 kg. Ég fussaði nú við því og sagði ekki vera glætu að ég væri að bera 20 kg af fitu utan á mér. Ekki séns í helvíti.

Nú, þegar ég er byrjuð að jogga, eins og Fjóla orðar það, finn ég hvernig fitan hreinlega hoppar upp og niður utan á vöðvunum á lærunum. Mér finnst stundum að ef ég jogga mikið fari fitan bráðum að rifna af og detta á gólfið þegar hún hólkast svona utan á mér. Þvílíkur viðbjóður. Ég neita samt að trúa að ég sé með 20 kg af auka fitu. Ég samþykki að ég sé með 15 kg sem mega fara en restin er mér lífsnauðsynleg. Held ég. Nei ég fullyrði það.

Var ég ekki í baði áðan og spennti vöðvana í lærunum og tók til við að klípa í mig til að athuga hvar ég fyndi spik. Niðustaðan var skelfileg. Ég hef jafnþykkt fitulag á lærunum og langt upp á bak! Þetta gengur ekki lengur.

Ég er búin að setja mér takmark. Ég ætla að verða eins flott og Jennifer Beals var í Flashdance. Ég gef mér tvo mánuði til að ná þessu takmarki.

Best að fá sér vatn.


| anna | 22:10 |
comments

Verð að viðurkenna það, að mér finnst flug_og_mynd-myndin miklu.. miklu skemmtilegri mynd en flashdance-myndin þín... laughing
Ég græt af hlátri í hvert sinn sem ég sé þessa auglýsingu í sjónvarpinu og hugsa... fyrst hann getur það, því þá ekki ég? wave

Nr. 1 | posted by: hugskot | 16.03.2004 | 23:23:13 | [+] |

Hugskot:

Já ég græt líka. Mér finnst þessi maður stórkostlega fyndin og svei mér þá ef hann er bara ekki meira sexý á sinni mynd en Jennifer! colgate

Harpa:

Hva má maður líka! Varst þú ekki að taka inn einhverjar pillur um daginn? Ég er þó bara að taka inn vatn og ávexti. wink 46 kg er ekki takmark hjá mér en mig langar að losna við þetta sem hangir laust utaná lærunum á mér. Þetta er bara svo óþægilegt þegar maður er að jogga! silent

Nr. 2 | posted by: anna | 17.03.2004 | 10:44:24 | [+] |

Persónulega finnst mér íslenska útgáfan af myndinni hérna fyrir ofan betri.

Nr. 3 | posted by: ingo | 17.03.2004 | 11:16:00 | [+] |

Já! hlustaðu á Eddu! Þú er eins og flóðhestur! Og ef þú drattast ekki upp úr þægilegum hægindastól og ferð að grenna þig, hver verður þá fyrirmynd mín þegar ég þarf að fara í megrun 33 ára?!
Líf mitt veltur á þér Anna!

Nr. 4 | posted by: Júlía | 17.03.2004 | 20:35:54 | [+] |

Mæli frekar með því að þú stefnir í að ná fituhlutfalli Gussa í auglýsingunni.

Nr. 5 | posted by: Þórdís | 17.03.2004 | 22:16:28 | [+] |

Hvaða hvaða stelpur mínar. Eitt kíló farið so far. Ég er officially orðin 63 kg og skv þessari síðu er ég í kjörþyngd þar sem ég er 1.65 á hæð.

Sem er skrítið því það er víst of mikið að vera með 30% fituhlutfall.

Ég er reyndar ekki langt frá því að fá þessa niðurstöðu: "BMI stuðull er 25. Þú ert of þung/ur og því rétt að huga að breyttum lifnaðarháttum hvað arðar mataræði og hreyfingu til að koma í veg fyrir frekari þyngdaraukningu." Ég fæ þessa niðurstöðu ef ég fer upp í 68 kg.

Svo þið sjáið að í dag er ég aðeins fimm kg frá því að vera of þung. Það er magnað.

Þórdís: Ef ég verð eins sexý og Gussi þá stefni ég á það. Ekki spurning. colgate colgate

Nr. 6 | posted by: anna | 17.03.2004 | 23:47:16 | [+] |

Eru Aids karamellurnar nokkuð ennþá til sölu? Þær áttu að grenna mann sjálfkrafa hér á 8. áratugnum. Sennilega skemmtilegra að jogga grimmt.

(p.s. er stolt af þér ef þú hefur ekki keypt þér pakka við Doddasjokkið í gær. Það hefði verið kjörin afsökun til að falla)

Nr. 7 | posted by: Atviksorða-Anna | 17.03.2004 | 23:58:44 | [+] |

Atviksorða-Anna:
Hún anna okkar fellur ekki við Doddasjokk enda á bólakafi í útlitsdýrkun þessa daganna (stefnir á að komast í Americas next súpermodel II). Hún veit að Camel konur verða krumpaðar og fá ljóta ráma rödd! Anna er að koma sér upp krónísku vatnsþambi af geðrænum toga og hefur ekki tíma til þess að kveikja í rettu...... laumast frekar í eitt og eitt kókglas colgate

Nr. 8 | posted by: edda | 18.03.2004 | 16:41:37 | [+] |

Það er búin að vera fluga heima hjá mér í stofuglugganum.. er það þú Edda? Hvernig veistu þetta með kók glasið? Hver segir þér frá þessu??? doubt

Annars ætla ég ekkert að fara í Americas nex súpermódel II. Ég ætla að verða næsta miss Internet. Þær þurfa ekki að koma fram á sundbolum. Þær koma fram í stuttermabol, með pizzu í annarri og bjór í hinni colgate Eins gott að keppnin verði á laugardegi. Ég er búin að taka bæði bjór og pizzu af matseðlinum nema á nammidögum/laugardögum!

Nr. 9 | posted by: anna | 18.03.2004 | 16:52:22 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web