Laugardagur, 20. mars 2004
Settist fyrir framan tölvuna áðan til að skrifa viðskiptaáætlunina mína. Búin að laga forsíðuna aðeins, setja upp nýja könnun sem er inspired af nokkrum tölvupóstum sem ég hef fengið undanfarið, updeita movie hall of fame getraunina á sama stað og bæta við hljóði og fíneríi í result-ið. Ég er búin að taka passwordið af song of the week því ég hef skipt um skoðun hvað það varðar allt saman og búin að setja inn lögin sem vantaði.
Ekki búin að skrifa stafkrók í viðskiptaáætluninni. Ég held að ég noti hægra heilahvelið of mikið. Á erfitt með að plugga í þetta vinstra. Þegar ég hinsvegar næ sambandi við það á þetta eftir að ganga eins og í sögu, ég veit það vel. Það er bara eins og sambandið sé eitthvað lélegt núna þessa dagana. Mig vantar plugin. Verst að ég get ekki náð í það á netinu...