www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Veikt hné
Þriðjudagur, 30. mars 2004

Ég fór með Dodda í morgun upp á bráðavakt. Ekkert fannst í þvagi og allar blóðrannsóknir koma út "í lagi". Við vorum send heim. Ef hann fær háan hita eða hnéð á honum fer að bólgna eigum við að koma með hann akút upp á bráðavakt. Við eigum endurkomutíma á fimmtudaginn. Ef hann verður ekki orðin góður í hnénu verður lagt út í meiri rannsóknir.

Þar sem Doddi getur ekki gengið og finnst best að hafa hnéð bogið er hann farin að skríða til að komast leiðar sinnar. Já... fimm ára drengurinn minn er farinn að skríða aftur.

Ég neita því ekki að ég er stressuð yfir þessu. Hvað ef hann lagast aldrei í hnénu??? Ég reyni nú samt að halda ró minni en það er bara eitt sem fer reglulega í taugarnar á mér þessa dagana og það er þegar Doddi fer að tala um það þegar hann verður engill.

Vinur hans á leikskólanum sagði honum einu sinni að þegar fólk deyr breytist það í engla og fer upp í skýin. Ég hef ekkert við þetta að athuga nema að síðan þá hefur Doddi oftar en einu sinni og oftar en tvisvar byrjað setningu svona: "þegar ég verð orðin engill, þá...". Eins og það sé að fara að gerast í næstu viku!

Þetta pirrar mig alveg ósegjanlega því ég vil bara alls ekki að hann verði engill á næstunni. Í dag sagði ég við hann að ég vonaði samt að ég yrði engill á undan honum. "Jahá, auðvitað mamma! Þú ert miklu stærri en ég!" svaraði hann stórhneykslaður. Svo skreið hann í átt að playmódótinu sínu.

Mig langaði að gráta.

Útbrotin eru horfin en hann er ennþá með smá hita. Samt ótrúlega hress. Það eina sem hann er ósáttur við er að vera alltaf að fara uppá spítala til að láta kíkja á sig. "Ég er sjúklingur ennþá. Læknarnir þurfa að hætta að kíkja á mig, þeir þurfa að laga mig. Þá get ég hætt að fara upp á spítala."

En læknarnir vita bara ekki hvað er að ástin mín.

Í svona aðstæðum er afneitun besta meðalið. Hann er líka of hress til að maður trúi að þetta sé eitthvað sem lagast ekki á næstu dögum. Í lang versta falli þarf ég bara að kaupa fullt af hnésbótum. Sem er afneitun.


| anna | 21:49 |
comments

...bestu óskir um fullkominn bata hið fyrsta Ég er sannfærð um að bráðum fer Doddi að ganga um fullfrískur... bataóskir enn og aftur smile
bestu kveðjur... be brave! wave

Nr. 1 | posted by: hugskot | 31.03.2004 | 21:54:33 | [+] |

Alltaf voða vont að vita ekki almennilega hvað er að. Gangi ykkur vel í baráttunni.

Nr. 2 | posted by: Þórlaug | 31.03.2004 | 22:32:06 | [+] |

p.s. sko, hérna, vona að allt gangi vel hjá Dodda. Það er fyrir mestu embarassed

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 31.03.2004 | 23:08:15 | [+] |

Jackie Brown toungue

Nr. 4 | posted by: anna | 2.04.2004 | 13:53:20 | [+] |

Dóh! gnasher

Nr. 5 | posted by: Atviksorða-Anna | 2.04.2004 | 14:27:55 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web