www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Undur og stórmerki
Laugardagur, 06. mars 2004

Ég er búin að drepa allar áströlsku runna plönturnar nema eina. Hvaða planta haldiði að hafi lifa af? Jú.. einmitt þessi sem ég er búin að vera að taka myndir af til að sýna framfarirnar á síðunni minni. Er það tilviljun? Eða hefur þessi ákveðna planta extra lífsvilja fyrst hún fékk svona auka athygli frá mér?

Mér finnst þetta skelfilega merkilegt. Hélt að þessi myndi setja tærnar upp í loft líka, ef svo má að orði komast, hún er búin að vera sem steingerð í blómapottinum síðan síðast. Vildi til að ég rak augun út í glugga í dag og viti menn! Ástralski runninn, þessi eini sem eftir er, er byrjaður að vaxa aftur!

Þetta er nú samt ekki það eina sem gerðist óvenjulegt í dag. Í dag fékk ég nefnilega heimsókn. Edda frænka kom dúllurnar dætur sínar í heimsókn. Mér fannst þetta virkilega gaman og var í raun búin að gleyma hvað það er gaman að fá fólk í heimsókn. Ég ætti kannski að fara að bjóða fólki hingað. Byrja á Þór (er ekki búin að gleyma þér, er ennþá að íhuga tilboðið þitt).

Ekki er allt komið enn af undrum sem gerðust í dag.

Tóti fór í vinnuna í hádeginu, eins og venjulega á laugardegi, og sagðist myndi koma eftir klukkutíma, eins og venjulega. Klukkan rúmlega níu í kvöld kom hann heim úr vinnunni, eins og venjulega, nema í þetta skipti kom hann með jarðaberja shake, spes fyrir mig, og jarðaber, spes fyrir mig. Ég er alveg handviss um að hann sé að því að segja mér að hann vilji fá skilnað til að geta gifst Fréttablaðinu. Hann ætlar að mýkja mig upp fyrst.

Ætli hann sé veikur?

Hvað um það. Ég ætla að fara að þefa af ástralska runnanum mínum og borða jarðaber.


| anna | 22:17 |
comments

Jarðaber tengi ég alltaf sumrinu, en núna er hægt að kaupa þau á öllum tíma árs. Koma frá Kanaríeyjum eða jafnvel úr groðurhúsum í Hollandi á þessum tíma árs. Stundum eru þau bragðlítil, þótt á utan skorti ekkert uppá raiðan litinn. Hef enn ekki hitt manneskju sem ekki þykir jarðaber góð.
Og svo þetta með reykingarnar. Það er víst algengt að löngunin sé sterkust milli 21.30 -22.30, hvernig sem á því stendur.

Nr. 1 | posted by: Refurinn Loki | 7.03.2004 | 13:21:34 | [+] |

HHumm! Tel mig þekkja Tótann betur en þetta. Held meira að segja að ég geti lesið á milli línanna hér. Veit fyrir víst að Tótinn þinn hefur í gegnum tíðina átt sér uppáhaldsleikara og ein af hans uppáhaldsmyndum skartaði þeim Mickey Rourke og Kim Basinger. Já 9og hálf vika er það sem var ofarlega í huga hans eftir langann vinnudag á Fréttablaðinu. Það sem þú slepptir var einmitt fljótandi volg súkkulaði sósan og og rjóminn. Passar mjög vel með jarðaberjum. Sheikinn er bara til að rugla almenning sem skilur ekki það sem stendur á milli línanna!

Nr. 2 | posted by: edda | 8.03.2004 | 18:06:37 | [+] |

jæja gott að heyra, en ég bíð ekki að eilífu...! evil

Nr. 3 | posted by: Þór | 15.03.2004 | 14:33:59 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web