www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Til Hamingju með afmælið Harpa
Þriðjudagur, 23. mars 2004

Það er náttúrlega alveg óþolandi að bloggið manns bili akkúrat á afmælisdaginn! Ég varð vör við þetta hjá henni Hörpu þegar ég ætlaði að kommenta á síðuna og óska henni til hamingju með afmælið í morgun. Þorði ekki öðru eftir að ég vaknaði með rolluhaus í rúminu um daginn með áföstum miða sem á stóð:

"Langaði bara að minna á afmælið mitt þann 23. mars.
-Harpa"

Hún veit að ég á til að gleyma afmælum. Mínu eigin og annarra og hún kann að make a lasting impression.

Svo til hamingju með afmælið Harpa. Hvernig er svo að vera orðin tuttugu og tveggja? wink

Bestu kveðjur,
Anna


| anna | 15:18 |
comments

Takk Anna mín!

Ég sendi eins marga rolluhausa og ég átti (af dauðum rollum sko, tímdi ekki hinum) til að minna fólk á afmælið mitt. Og þú fékkst sko stærsta hausinn!
Reyndar var þetta ferhyrntur hrútur en hvernig átt þú að þekkja muninn? laughing

Ég er ekkert smá fúl útí helvítis einokunarfyrirtækið Símann, að uppfæra kerfið sitt s.l. nótt og hafa svo allt í skralli á þessum annars merkisdegi. Ég er að verða búin að grenja úr mér augun í dag yfir ástandinu. Og hafa svo ekki einu sinni tilkynningu um þetta á síðunni sinni. Fokking fávitar.
Svo var ekki einu sinni nóg að hringja og tilkynna bilunina heldur vildu þeir að ég sendi þeim emil líka. Ætli þeir fái aldrei póst, eða? pirate

Annars, það er alveg geggjað að verða orðin tuttugu og tveggja, loksins! wink

En veistu hvað mig langar í í afmælisgjöf? embarassed Svona smælingja angel clown

Nr. 1 | posted by: Harpa | 23.03.2004 | 16:15:29 | [+] |

Veistu... ég reyndi en það tókst ekki. Skil ekkert í þessu! [angry]

Nr. 2 | posted by: anna | 23.03.2004 | 21:49:58 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web