Sunnudagur, 28. mars 2004
Mig langar í nammi, nammi, nammi. Mig langar í nammi. Var að lesa komment á badabing.is þar sem Salvör talar um stöðnun í bloggi. Hmm...
Datt í hug að stimpla mig inn á láta vita að mér leiðist. Sem er alveg nýtt. Engin stöðnun hér. Mér leiðist og mig langar í nammi. Það er svo sannarlega nýtt þar sem ég yfirleitt bara fæ mér nammi þegar mig langar í það. En ég er að reyna að hemja þessa þrá mína og þráast við að hlaupa niður í bíl og út á næstu Shell bensínstöð til að kaupa nammi fyrir síðustu peningana úr bauknum hans Dodda.
Sit því hér og skrifa. Þori að veðja að ég hlaupi út í bíl um leið og ég smelli á "save" og "publish".
Annars er það í öðrum fréttum að músin mín er ónýt. Hún virkar í ca 70% tilfella sem ég reyni að beita henni. Nú er lag að læra að stjórna vélinni sinni með lyklaborðinu einu saman, eða rífa músina í sundur og þrífa kvikindið. Aldrei að treysta nagdýrum. Ég segi það í fullri alvöru eftir að hamsturinn hennar Júlíu systur réðist á mig í vígahug og var næstum búinn að naga mig á háls.
Auðvitað nenni ég ekki að læra að stjórna vélinni minni með lyklaborðinu. Því til sönnunnar mun ég nú ná mér í skrúfjárn og athuga hvort ég geti ekki gert illt vera...