Föstudagur, 05. mars 2004
Úff hvað Johnny Depp er flottur. Úff alveg. Ég er ekki í nokkrum vafa um að eftir nokkrar vikur verði allir komnir með sjóræningjaklút á hausinn, eins og ég.
Búið að vera hrikalega gaman hjá okkur krökkunum í kvöld. Allir með klút (eða trefil) á hausnum, með svört strik undir augunum að róa út í fjársjóðseyjuna. Notuðum sófann sem bát og skíðastafi fyrir árar. Rétt sluppum úr klóm Siglufjarðar sjóræningjans og hans hyski sem ætlaði að reyna að ná af okkur kistunni með gullinu. Honum varð ekki kápa úr því klæðinu. Doddi plaffaði hann niður með haglaranum og hyskið tvístraðist um allan vesturbæinn.
Það er gaman að vera til.
Tóti tók sig bara vel út í Landsins snjallasti en sjitt hvað mér leið illa að horfa á hann borða Royal búðinginn. Þarf greinilega að vinna betur í meðvirkninni.
Fékk þvílíka sígarettu-löngunnar-æðið í kvöld. Bjargaði mér að ég var eins og sjóræningi til fara og gat ekki hugsað mér að fara þannig að versla mér sígarettur.
Annars hefur mér alltaf fundist gaman af því að klæða mig í búninga. Þegar ég varð 29 ára hlýtur Tóti að hafa verið mjög fullur því ég fékk hann til að samþykkja að halda grímuball þegar við yrðum þrítug. Þannig kom það til að í tólf mánuði sagði Tóti a.m.k. einu sinni á dag: "það kemur engin" og ég svaraði: "þá er bara meiri bjór fyrir okkur elskan".
Fjórum tímum fyrir grímuballið var Tóti ennþá að tauta þetta fyrir munni sér. Boy hvað hann varð hissa þegar fullt af fólki í grímubúningum mætti á svæðið. Ég skemmti mér svakalega vel þetta kvöld og ákvað að næsta stórafmæli yrði líka grímuball, sem verður einmitt árið 2006.
Síðast þá notaði ég tæknina og sendi boðskortið í tölvupósti með link á heimasíðu sem ég bjó til í kringum þetta húllumhæ. Ég er þegar byrjuð að vinna í síðunni fyrir næsta gigg. Búin að búa til "teaser".
Tóti er byrjaður að tauta "það kemur engin".
Næsta grímuball legst vel í mig. Kannski að maður verði sjóræningi?