www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Plöntu skýrsla
Fimmtudagur, 11. mars 2004

129_3000-3.jpg

Það er magnaður andskoti þetta jurtalíf á heimilinu hjá mér. Hér fyrir ofan má sjá tvær plöntur. Þessi minni er ástralski runninn, aka The survivor. Plantan við hliðina á surviver-num er passion flower. Fræið af ástralska runnanum fór í mold 2. september í fyrra. Fræið af passion blóminu fór í mold 1. febrúar síðastliðinn, eða um daginn.

129_3000-2.jpgÞað er augljóst að maður plantar fræjum ekki í september. Best að reyna að muna þetta.

Hér er stækkuð mynd af ástralska runnanum. Takið eftir því hvað nýju blöðin eru stór miðað við þessi gömlu. Skrítið þegar planta staðnar, hættir að vaxa og svo allt í einu byrjar hún að rjúka upp eins og henni sé borgað fyrir það.

Best af öllu er samt blóm sem ég er að rækta sem ég tók ekki mynd af til að birta hér. Það er "snertu mig ei" eða eitthvað álíka. Þegar maður kemur við blöðin á því blómi lokar það blöðunum um leið. Magnaður andskoti og ég er viss um að ég drepi blessaða plöntuna löngu áður en hún kemst á legg. Það fyrsta sem ég geri þegar ég vakna á morgnanna er að snerta blöðin á henni og sjá hana kuðla þeim saman af hræðslu.

Þessi planta er æðisleg.


| anna | 20:12 |
comments

Ég get svo svarið það. Ég hef meiri áhuga á klósettum en þessum "ofur" plöntum.. Á fínum hótelum í Japan, Tokyo eru klósett með nokkrum hnöppum! Einn þeirra t.d. spúla á þér rassinn!

Nr. 1 | posted by: Júlía | 11.03.2004 | 20:32:55 | [+] |

Þetta er auðvitað gjörsamlega magnað! Ég er ekki svona hrifin af klósettum. Ég er meira fyrir baðkör happy

Nr. 2 | posted by: anna | 11.03.2004 | 21:07:00 | [+] |

Ertu að rækta mannætuplöntur? what
Spáðu í þegar þær verða orðnar svo stórar að þær gleypa þig þegar þú reynir að faðma þær áður en þú ferð í vinnuna á morgnanna.
Varaðu þig sad

Nr. 3 | posted by: Harpa | 12.03.2004 | 7:59:41 | [+] |

Nei ég er að rækta mannafælur. Þegar maður kemur við þær fá þær kvíðakast og hnipra sig saman colgate

Nr. 4 | posted by: anna | 12.03.2004 | 9:57:50 | [+] |

Send me a line Anna!
Im on ISLAND this very moment with my girlfriend attending a conference.
Or make a call 0046702998453 to my cell phone.
Best wishes
Max Allan

Nr. 5 | posted by: Max (Allan!) Stenlund | 12.03.2004 | 11:56:04 | [+] |

Ég held að "snertu mig ei" blómið heiti Mímósa, og vex villt t.d. í Argentínu....lifði bara í 2 mánuði hjá mér thumb down ferlega fúlt.

Nr. 6 | posted by: Kristjana | 12.03.2004 | 18:24:28 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web