Sunnudagur, 21. mars 2004
Fyrsta áfanga lokið í lagfæringum á badabing.is. Nú þarf Tóti að ákveða kategóríur í ákveðnum flokkum og þá get ég klárað. Hef samt lúmskan grun um að það verði ekki fyrr en eftir einhvern tíma.
Annars leiðist mér að lagfæra síður án þess að breyta útlitinu gjörsamlega. Það tekur þó óneitanlega lengri tíma að umbylta öllu og þó ég hafi boðið Tóta að gera það þá vildi hann það ekki. Enda er hann íhaldssamur með eindæmum.
Það er ég hinsvegar ekki. Ég er sjúklega nýjungagjörn og það var t.d. ekki fyrr en við keyptum svo stór húsgögn að það er ekki hægt að flytja þau einn síns liðs sem ég hætti að breyta stofunni vikulega. Þegar ég hugsa út í það er það líklega þess vegna sem Tóti lagði blessun sína yfir þessi húsgagnakaup in the first place.
Ég fann sterka þörf fyrir að búa til nýtt look á anna.is um daginn. Þegar ég var búin að skoða það mál í smá tíma ákvað ég að gera það ekki. Ég er of ánægð með síðuna eins og hún er.
Ég lít á þetta sem mikið þroskamerki.