Miðvikudagur, 03. mars 2004
Þegar ég kom heim til mín áðan féllust mér gjörsamlega hendur. Heimilið er eins og svínastía. Hvernig stendur á þessu?
Jú.. ég er ekki búin að "sinna heimilinu" í nokkra daga. Ég er ekki búin að taka fram flautuna (sem ég stal af leikfimikennaranum mínum í frumbernsku og nota til að píska eigin börn áfram í tiltekt) heldur.
Ég hef nefnilega haft nóg að gera undanfariði og þá meina ég annað en að elda, þrífa, skeina o.s.frv. Ég á ekki von á að sjá manninn minn fyrr en í næstu viku, (þegar hann kemur heim á kvöldin er ég farin að sofa og þegar ég vakna á morgnanna er hann farinn í vinnuna) ég stíla inná að hitta hann í tvo tíma annan hvern sunnudag. Þarf að fara að kíkja eftir hentugri hjásvæfu þegar ég man eftir því.
Það er nú samt sem áður augljóst að ruslið hér á heimilinu mun ekki hverfa af sjálfu sér. Hvað er til ráða?
Ég næ mér í poka og fer út að þrífa bílinn. Það er það eina vitræna í stöðunni.