www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kani og enn einn köngulóa draumurinn
Laugardagur, 20. mars 2004

Rétt upp hönd sem finnst gaman að spila kana!

Úff hvað mér finnst það gaman. Egill og Dúna komu í heimsókn í kvöld og spiluðu Kana við mig og Jóhönnu. Það er langt síðan ég hef skemmt mér svona vel heima hjá mér.

Annars er ég nú bara að blogga núna vegna þess að ég mundi eftir draum sem mig dreymdi í fyrrinótt. Ég mundi eftir honum þegar ég lá í baði eftir leikfimina áðan. Já og ekki get ég sleppt því að minnast á mömmu sem gleymir sko ekki smáfuglunum á veturna. Bauð okkur í mat, kjöt í káli, og ég borðaði gjörsamlega yfir mig. Svakalega var þetta gott. Enda verður maður að nota tækifærið þá sjaldan og maður kemst í tæri við mat.

Skv. nýjustu mælingum er ég 62 kg. Ég hef fundið skýringu á þessu skyndilega þyngdartapi mínu og hún hefur ekkert með leikfimi að gera. Við erum bara blönk. Svo blönk að við eigum ekkert til að éta. Það er spurning um að gefa út bók með þessari byltingarkenndu aðferð við að grenna sig. Nei.. þá fer ég að hafa efni á að kaupa mat fæ þetta allt aftur utaná mig.

Ég fer að passa í allar buxurnar sem ég setti upp í háa skáp fyrir hálfu ári þegar það var hreinlega orðið vandræðalegt að horfa upp á mig í þeim. Nei ég lýg því. Það var löngu orðið vandræðalegt að horfa upp á mig í þeim. Ég var óvenju lengi í afneitun í þetta skipti.

Jæja.. snúum okkur að draumnum. Þetta var stórfurðulegur draumur og ég tek fram að ég var ekki undir áhrifum neinna lyfja né áfengis þegar mig dreymdi þetta.

sw.jpgÉg er stödd inní eldhúsi hjá einhverri konu sem mér finnst ég kannast við og held að ég hafi vitað hver var í draumnum en ég man ekki hver það var. Man samt að þetta var kona sem vildi mér vel. Ég var að dáðst að plöntu sem ég hef aldrei séð áður. Köngulóa plöntu kallaði hún hana og er það réttnefni því þessi planta nærist á köngulóavef eingöngu. Blöðin uxu út um glufur á þéttriðnum köngulóa vef sem stórar tarantúllur mynduðust við að vefa allt í kringum plöntuna. Ég taldi níu köngulær sem hreiðruðu um sig hér og þar innan um blöðin.

Ég var komin til þessarar konu (gæti hafa verið Harpa, svei mér þá) vegna þess að hún ætlaði að gefa mér afleggjara af plöntunni. Mér fannst hún heldur rausnarleg og hafði á orði að ég skildi ekkert í því hvernig hún tímdi að gefa mér hluta af þessu.. jah.. listaverki náttúrunnar.
En hún sagði að hún yrði að gefa mér afleggjara af þessari plöntu og lét fylgja sögunni að það yrðu að fylgja þrjár köngulær því ef það væru færri köngulær en þrjár myndi afleggjarinn steindrepast.

Opnaði ég þá ekki lítið box með þremur væskilslegum köngulóm sem ég hafði komið með með mér. Alveg típískt ég, þegar ég hugsa út í það. Anyway..
Þegar hún sá þessa aumingja sagði hún mér að þetta myndi aldrei ganga. Ég yrði að fá stórar og loðnar hjá henni. Ég er að tala um, þær voru eins og ágætis undirskálar að stærð. Svo greip hún boxið með mínum köngulóm og dustaði þeim út um gluggann. Ég fór heim með klístraðan köngulóavefja afleggjara og þrjár hlussu tarantúllur í poka. Alsæl.

Ég vaknaði áður en ég komst að því hvernig fjölskyldan tók þessu. Rats. Það hefði nú verið gaman.

Mikið rosalega var þetta fallegt. Þótt ótrúlegt megi virðast.


| anna | 1:12 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web