Fimmtudagur, 18. mars 2004
Anna: Barba brella. Nú færðu sendan póst frá mér með nánari leiðbeiningum.
Viðskiptavinur: Súper. Langt síðan ég hef heyrt þetta, barba brella.
Anna: Já, og nú veistu líka sirka hvernig ég lít út.
Viðskiptavinur: (hlær) Þú segir það.
Anna: Möguleikarnir eru endalausir.
Viðskiptavinur: (hlær meira) Don't go there.
Nú er ég hinsvegar komin heim til mín og vildi óska þess að ég væri af Barba ættum. Ekki veitir af barba brellum í þessu ruslara umhverfi. Ég þarf að koma einhverri reglu á umgengni hérna.