Mánudagur, 29. mars 2004
Hún Camile Valesco er að misþyrma því annars ágæta lagi Desperato í þessum skrifuðu orðum. Ömurð. Hún hefði átt að fá the boot fyrir þetta.
Ég er að horfa á endursýningu Idol og er búin að finna sigurvegarann í þessari seríu. Það er engin önnur er Fantasia Barrino. Vá! Þessi stelpa getur sungið. Síðast tók hún eitt af mínum uppáhalds lögum og án gríns.. mig langar í þá útgáfu af laginu. -Sem hefur aldrei komið fyrir mig fyrr. -Að langa í lagið með flytjanda úr Idolinu. Tala nú ekki um að þetta er lag sem ég fíla í botn og yfirleitt finnst mér fólk myrða þau lög í þessari keppni. Jafnvel þótt þau taki þau vel. Eins og t.d. John Stevens með King of the road. Glataður. Þetta er country ekki swing. Ég er langrækin. Ég vil John út. Það er ekkert sem hann getur gert til að bæta mér þetta krún upp.
Anyway... fékk sjokk áðan þar sem ég lá í sófanum, undir sæng, og sá Simon kyssa hana Paulu. Úff.. fékk sting í magan og hjartað barðist um. Símon er flottur, fær allavega hjarta grasekkjunnar til að slá og ef hann og Paula eru ekki having it off on the side þá skal ég fá mér hund og skýra hann Róver. Þið sjáið að ég er ansi sannfærð þar sem ég væri að undirrita minn eigin dauðadóm með því að fá loðdýr á heimilið. Hef ofnæmi fyrir loðdýrum. Gæti aldrei deitað mann sem er t.d. loðinn á bakinu. Fæ útbrot og andnauð...
Áttaði mig líka á í hverju munurinn á Bubba og Símoni liggur. Munurinn er einfaldlega sá, að Bubbi gagrýnir fólk þegar það gerir ekkert gagnrýnivert en the bitter truth virðist rata óhikað endalaust úr munninum á Simon. Hann ætti samt að hætta að gefa fólki fingurinn í tíma og ótíma, það er nú soldið langt gengið. Er honum sammála í 85% tilfella.
Hvað aðra keppendur varðar þá er ég sammála Paulu með röddina í George Huff. Sexxxxxxy! Væri sko alveg til í heyra þessa rödd hvísla einhverju sætu í eyrað á mér. Hann hefur þvílíkan sjarma þessi strákur. Hann er æði. Flott þetta "dip" sem hann gerir. The boy has mooooves. Hann mun samt sem áður ekki vinna þessa keppni en líklega uppskera e.k. starfsferil í tónlist svipað og Kim Locke. Kúdos Huff. Wish you all the best.
La Toya tók sitt lag vel en það er bara eitthvað sem ég er ekki að fíla við þessa stelpu og get ekki alveg pleisað hvað það er. Hún er með svona andlit sem maður á auðvellt með að gleyma eða eitthvað. But hey.. þetta er bara annar þátturinn sem ég sé. Kannski man ég eftir henni næst. Hún söng samt það vel að hún fær mynd.
Næst á dagskrá er Jennifer Hudson. Hún er með ágætis "stjörnu" nafn. Ég get allavega sé þetta nafn: "Jennifer Hudson" fyrir mér upplýst á billboard-i. Sorglegt því hún vinnur ekki þessa keppni. Augun verða of furðuleg í háu nótunum og já.. hún setur upp einhvern geðveikissvip. Hún kann ekki að ganga á hælum en ok... hún kann að syngja stelpan. Fannst lagið sem hún söng í kvöld ekkert átakanlega flott hjá henni. Hún getur betur. Er sammála Simoni. Hún er out of her league.
Við erum með "the comic relief". The pen salesman for christ sake. Jon Peter Lewis. Hann ætti að halda áfram og fíflast en ekki reyna að vera alvarlegur eða rómó. Nó sir. hefði átt að vera vótaður off fyrir þessa frammistöðu.
"Nausiating" var orðið sem Símon henti í Matt. Óverðskuldað. Mjög óverðskuldað. Matt er hinsvegar búinn að fara í taugarnar á Simon for the longest time. Held að Simon sé eitthvað jellus. Maður veit ekki. Úff.. þeir eru að spila brotin úr lögunum og þessi Huff gæji.. mamma mía! The things I would do!!!!
Back to Matt. Nei oh.. rauðhærða gerpið að nauðga King of the road.. Valesco fylgir honum fast á eftir við að limlesta Desperato.
Nú slekk ég á sjónvarpinu.
Já. Þá er það komið. Þ.e. sjónvarpið. Mikið fann ég til með Matt. Skil ekki af hverju hann var kosin út en mér finnst líklegt að þetta orð: "nausiating" hafi átt þátt í því. Góður þegar hann söng fyrir Símon í lokin. Bless Matt. Ó.. til að forðast allan misskilning. Matt átti aldrei sjéns. Hann er hinsvegar eini karlmaðurinn í keppninni. Nú eru bara konur og börn eftir.
Já og Simon auðvitað..
Ég nenni ekki að skrifa um aðra þar sem ég man ekki eftir þeim og dæmi þá hér með úr leik. Þeir sem ég skrifa illa um eiga að detta út í næstu þremur þáttum. Það er eitt að vera forgettable, annað að vera svo hörmulegur að maður neyðist til að tjá sig um það.
Gaman að því að Kimberly Locke kom að syngja í útslitaþættinum. Idolið að misnota aðstöðu sína til að plögga afurðir sínar. Já blessuð markaðsmaskínan...
Flott lag. Greinilega fleira en tískan sem er 80's þessa dagana. Hefði getað svarið fyrir að ég hafði heyrt þetta lag áður...