www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Aloha
Laugardagur, 13. mars 2004

Aloha skrifar í gestabókina mína og spyr hvenær það verði partý hjá mér næst. Það sé svo gaman í partíum hjá mér. Sama manneskja biður að heilsa Tóta sem bendir eindregið til þess að viðkomandi sé ekki að "ruglast á Önnum".

Ok það er... var gaman í partíunum sem við héldum hér í den en mikið djöfull er langt síðan við höfum staðið fyrir svoleiðis samkundum. Síðast héldum við 80's partý fyrir vinnufélaga Tóta og það var s.l. haust. Minnir mig. Einn nágranninn kom og kvartaði yfir hávaða frá íbúðinni klukkan hálf eitt. Sælla minninga.

Ég verð eiginlega að biðja Aloha að gefa sig fram svo ég nippi ekki á nippinu úr forvitni.

Fyrir ykkur hin sem eru að velta því fyrir sér hvernig maður heldur gott partý þá er þetta uppskriftin:

1. Massi af góðri tónlist.
2. Fólk.


| anna | 22:33 |
comments

Þú nefnir bara stund og stað og við Hexia mætum á kústunum með stollí og fresítur. thumb up

Nr. 1 | posted by: Norn | 14.03.2004 | 13:38:24 | [+] |

Ójá, ætli ég eigi ekki að minnsta kosti eitt partí inni hjá ykkur... hvenær er svo geimið?

Nr. 2 | posted by: Þór | 15.03.2004 | 14:03:33 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web