Föstudagur, 19. mars 2004
Ég sit stundum og velti því fyrir mér hvað varð til þess að ég er eins og ég er. Hvað hafði þessar afleiðingar í för með sér?
Ég velti því fyrir mér hvað hefði gerst ef ég hefði valið þetta eða hitt umfram það sem ég hef valið í gegnum árin. Hvað ef ég hefði keyrt Hringbrautina fyrir fimm árum í stað þess að taka Sæbrautina. Þá hefði ég kannski klesst á. Kannski hefði ég eignast mortal enemy. Hvað hefði gerst ef ég hefði gefið stráknum sem elti mig á Porsche-num símanúmerið mitt? Hvað hefði gerst ef ég hefði keyrt aðra leið í vinnuna en ég gerði í morgun? Mér finnst þetta skemmtilegt og ég hugsa ekki um þetta með eftirsjá. Ég hugsa um þetta vegna þess að mér finnst gaman að spá í hvað lífið er skrítið og fullt af afleiðingum sem maður hefur stundum enga stjórn á. Dæmi um slíkt er þegar maður ákveður að droppa inn á bensínstöð til að fylla á bílinn. En hvað ef það er verið að ræna bensínstöðina sem þú valdir að fara á og þú verður drepin? Ókey, ekki líklegt en augljóslega tókstu ekki þá ákvörðun að fara á bensínstöðina til þess að þú yrðir rændur og myrtur. Er það? Þú bara valdir bensínstöð at random en þurftir að taka afleiðingum sem þú gast ekki séð fyrir.
Sumar afleiðingar eru hinsvegar fyrirsjáanlegar. Til dæmis: Ef ég skrifaði um það að mér leiddist í vinnunni og langaði að go postal með haglabyssu, gæti það haft slæmar afleiðingar í för með sér. Samstarfsmenn mínir gætu farið að forðast mig og jafnvel heimtað að mér yrði sagt upp. Enda myndi mér aldrei detta í hug að segja frá þessari duldu þrá minni hér á vefnum. En það eru ekki allir sem hugsa um afleiðingar gjörða sinna þó ég geri það.
Ég hef alltaf haldið því fram að ég væri mjög óskipulögð manneskja. Í gærkvöldi áttaði ég mig á því að það er bara alls ekki rétt. Ég er mjög skipulögð en það sjá það bara mjög fáir. Til dæmis krefst það skipulagningar að eiga bara eitt sett af æfingarfötum og fara í líkamsrækt þrisvar í viku. Sérstaklega krefst þetta útsjónarsemi þegar maður á mikið af öðrum óhreinum fötum sem þarf líka að þvo. Einhvern veginn text mér samt alltaf að hafa æfingarfötin þurr uppá snúru þegar ég þarf að klæða mig í þau. Það er vegna þess að ég veit að...
Ég er of þung og ef ég ætla að léttast þá þarf ég að stunda leikfimi.
Ef ég á að stunda leikfimi þá þarf ég að hafa föt til þess að djöflast í.
Ef fötin eru ekki hrein, þá skrópa ég í leikfimi.
Ef ég skrópa í leikfimi þá verð ég hrædd við að kennarinn skammi mig.
Svo ég skrópa aftur í leikfimi.
Ég veit að ef ég hef ekki leikfimifötin mín hrein og tilbúin fyrir hvern tíma mun ég heltast úr lestinni og hætta að mæta. Ég mun í framhaldinu drekkja sorgum mínum í kóki og jafnvel áfengi, sem mun leiða til þess að ég fer að reykja eins og strompur og basically daga uppi sem feit, útlifuð jussa með krumpaða reykingarhúð.
Þetta veit ég vegna þess að ég þekki sjálfa mig og get rakið hvaða afleiðingar gjörðir mínar munu hafa.
Ég er frábær skipuleggjandi í raun og veru því ég get rakið mig í ýmsar áttir í afleiðingapælingum mínum.
Dettur mér í hug. Það er áhugavert að ég hef nákvæmlega engan áhuga á að rekja ættir mínar. Þó að það sé í raun sami hluturinn. Því við erum, hvert eitt og einasta okkar... afleiðing.