Mánudagur, 23. febrúar 2004
Fyrst Júlía systir er byrjuð að blogga af alvöru hef ég linkað á hana. Það er ekki allt. Ég er líka búin að rústa blogspot síðunni hennar og beina allri umferð á hana á nýju síðuna hennar Júlíu sem er á anna.is domeininu. Þetta geri ég bara vegna þess að engin er eins duglegur að passa börnin mín og Júlía. Engin er eins dugleg/ur að kenna mér að þrífa á mér húðina og Júlía. Engin nennir að taka mig í andlitsbað nema Júlía. Engin býr til eins góðan hafragraut og Júlía og síðast en ekki síst.. þá finnst mér bloggið hennar alveg hrikalega skemmtilegt svo ég vil leggja mitt af mörkum til að gera það aðgengilegt og kommentable.
Það er svo í öðrum fréttum að ég skráði mig á líkamsræktarnámskeið í dag. Átta vikur, þrisvar í viku. Það þýðir ekkert annað, fyrst maður er hættur að reykja og svoleiðis er best að hafa þetta allt í stíl. Já svo ætlar Júlía systir að kenna mér eitthvað sem nefnist "bað yoga".
Mikið hrikalega verð ég orðin flott eftir allt þetta trebb - eins og Nornirnar myndu orða það... (eða er þetta ekki rétt hjá mér Nornir?)